- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
138

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 138 —

tíma, að eitthvað er til, sem heitir böggladuggan; og
„spurt um fiskiveiðar", Páll, Páll! Margar kvaðir
liggja á mannlegum líkama. Heilsaðu fyrir mig
Gunn-ari mínum; Þorvald lygaia þarftu ekki að hirða um;
og ef þú gætir komið orðum til Björns í Móum, þá
væri mér geðþekkt, hann sendi mér, og sem fyrst,
verðið merarinnar, sem hljóp aftur heim til hans í
sumar, eð var, samdægurs og ég keypti hana.
Heils-aðu líka Kristjáni, ef ég skrifa honum ekki, og segðu
honum frá mér, að aldrei hafi mér liðið jafnvel og nú,
seinustu fjögur árin, og verið geti ég lifi enn með
guðs hjálp nokkur ár „alle vore Fjender til Skræk og
Bævelse".

Góðar eru rjúpurnar, Páll!

Bætandi við hér að vanda litlum kviðlingi:

Dvalins leiku hylur hér
Hólma faldinn tindur,
kalin bleiku blómin er
brytjar kaldur vindur.

Kryppu ljótri ormur ók
upp úr fljóti og belginn skók;
28 álna var,

eins og gáttir Nástrandar.

Hvað er Náströnd, herra minn?
í höllina þá að komast inn
— enginn veit hvað eftir fer —
Islendingar flýta sér.

Orna ég mér á hlóðahellu;
heldur fjandi i litlu tá;
fornri geri ég glóðakellu
grátkjökrandi að fitla á,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0146.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free