- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
151

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 151 —

"kominni sveltu, af því horngrýtis Rkm. dregur mig.
Verði ég svo óheppinn, að stelpan nái þér ekki heima,
þá ætla ég að biðja þig blessaðan að senda mér
ein-.hver skeyti með Sörni í fyrra málið.

Þinn

J. Hallgrimsson.

TIL ÞÓRÐAR JONASSENS.

Sórey, 26. Sept. 1843.

Elskulegi, góði vinur!

Ég verð nú ekki langorður heldur en vant er;
•erindið er lika lítið, nema heilsa og kveðja, og låta
þig sjá, ég lifi og muni eftir þér. Mér líður á flestan
hátt vel, guði sé lof; heilsan er sæmileg og vinnan
gengur sæmilega, og hvað aðbúð og umgengni
snertir, þá hefi ég ekki áður átt jafn-góðu að fagna
oft um dagana. Ég er hér úti bæði af því, að mér
|)ykir fara ólíku betur um mig en í
Kaupmanna-höfn, og svo hinu, að nú er fyrir alvöru verið að
gera við islandica; — ég er hjá Steenstrup, eins og
þú getur nærri, og við sitjum nú í samvinnu, og
komi nokkurn tima svo langt, eitthvað komist
út um ísl.-ferðina, verður það eftir okkur í
sam-einingu og undir beggja okkar nafni. Ekki hefi ég
heldur gleymt félaginu okkar, en landlýsingin
verð-ur mikið verk, og undirbúningurinn til að geta
skrif-að hana að gagni er ótrúlegur. Lakast er, að félagið
er ekki fært um að borga mér neitt, sem heita megi
viðunanlegt, og það er nú helzt, sem mér baggar —
peningaskorturinn —til að geta unnið almennilega.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0159.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free