Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 156 —
ins, eins hæðamælingar allra fjalla eftir
Gunnlög-sen, sem til eru og ekki finnast á suðurkortunum; eða
þarf ég að skrifa honum sjálfur? Enn er eitt; mér er
aldeilis ómissandi að fá eitt exemplar af annálunum,
sem búið er að prenta, þótt þeir séu ekki komnir til
útbýtingar. Ég skrifa annars Finni það, en bið þig
samt sem áður að umgangast, þeir komi, — þó ekki
sé nema korrektúruörk, — annars kostar það mig
ferð til Hafnar og setur á turni.
Hvað segið þið um það, sem komið er af
Alþing-inu? Var það séra Jón gamli, dáni, eða séra Jón ungi
i Steinnesi, sem meintur var?, og hver hefir þá
vís-að þeim á hann, því, satt að segja, þekki ég varla
heima efni i betri alþingismann, þótt þeim hafi
mis-sézt í því, ef þeir halda hann sé konservativ.
Fréttist annars nokkuð að heiman, og ætli
ís-lendingar séu dauðir eða lifandi? Sendu mér
frétta-seðil með næsta pósti og segðu mér jafnframt, hvað
þér verður ágengt fyrir mig, og hvernig fór með
félagslögin. —
Er nokkuð talað um skólabygginguna, og hvar
á Alþingi að fá sér hæli?, eða verður það
húsnæðis-laust, svo alvara komi úr gamni og þeir megi tylla
sér niður uppí holti?
Vertu blessaður og sæll!
Þinn
J. Hallgrimsson.
TIL J. F. SCHOUW(?).
(Sórey, 9. Nóv. 1843?).
(Det) maa vel ikke være Dem ubeken(dt, at det
island)ske litterære Selskab har bestemt at udgive
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>