- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
160

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 160 —

bakslaus. Fragtmanden fra Sorö fer héðan til
Hafn-ar í dag og heldur þar til i Knapstedgaard; komdu
á hann kápunni, en úrinu á pakkapóstinn, með
lykli; en sendu mér fyrst af öllu skildinga til að
geta borgað með fragtbréf etc. Þú færð bráðum
aftur nóga peninga að raga í. Umfram allt, hvað
þú gerir, gerðu það fljótt.

Hvað er annars í fréttum, ha? Ég hefi öngvan
seðil fengið frá íslandi og veit ekki annað þaðan en
þú hefir sagt mér; geturðu ekki hjálpað upp á mig
með eitthvað meira? Hverjir fá sýslurnar og hverja
þeirra færð þú?; hvað er um brauðaveitingar & c.,
hvað um skólann og alþing? ; voru veikindin hætt
og hvernig var haustið og hvernig hafði heyjazt?
Málaferli, hvalrekar, nýjar uppgötvanir, draugar
etc. etc. Segðu mér eitt með sannindum, sem ég
þarf að vita, hvenær er umboðstími þeirra 0. &
Wulff yfir námunum úti ?, og hvað mikið gjalda
þeir á ári eftir?, og hafið þið nóg skjöl til að búa
til eftir brennisteinssöguna (ég meina: en historisk
Oversigt over iSvovlproduktionens Tilstand i ældre
og nyere Tider) ? Við erum búnir með allt hitt um
brennisteininn og margt annað samt. Hvernig gekk
á fundi ykkar Islendinga, — þar sem tala átti um
verzlunina og annað? Ertu að redigera Fjölni og
um hvað viltu spyrja mig?

Þessu ætla ég nú að biðja þig að svara, en
skrifa mér samt fyrst samstundis. Ég skal annars
biðja fraktmanninn að koma til þín og taka
káp-una, en er hræddur um, hann hitti þig ekki heima.

Fáðu Konráði fyrir mig bréfið til hans og
berðu kveðju mina. Ég frétti ekki neitt af
Fjölnis-fundum; hvað fer þar fram?

Mikið segir maðurinn mér; mikið er um

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0168.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free