Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 161 —
Schouw, að ætla sér að klaga kansellíið, og ósköp eru
mennirnir reiðir, og ætli það verði nokkuð af
þess-um nýju barúnum? Altaf er ég hræddur um þessi
uppgöngu-augu, að það sé eitthvað satt og logið,
sem um þau er sagt, og vel getur verið,
Kolbeins-ey sé komin upp 1372, eða manstu eftir, hún sé
nefnd fyrri? Heyrir þú ekkert talað um Sórev,
hvað við hana verði gert? ; mér þykir ólíklegt, að
þessar gulbröndóttu pestarflugur hafi ekkert að
þýða. Nú er þá Grímur póstur á leiðinni norður, en
ekki er nú samt svo mikið um, að hann geti fært
kammerráðinu á Melum titilinn sinn.
Vertu blessaður og sæll!
J. Hallgrímsson.
Heilsaðu Pétri og segðu, hann hafi ekki
ann-að að gera en að skrifa mér til línu til gamans.
— Adieu!
TIL KONRÁÐS GÍSLASONAR.
(Sórey, í ársbyrjun 1844).
Konráð Gísla kundur hýr,
hvað er að „sýsla" þetta dýr,
aldrei skrifa aumum mér;
er hann að lifa þar og hér?
Ljóðabréf.
Sæll og glaður, séra minn,
síblessaður höfðinginn!;
hökufríður, hermdu mér:
Hvernig líður öllum þér?
11
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>