- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
164

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 164 —

der kommer?! Nu har han laant sin Fars
Udgangs-billet". —

Ég veit raunar ekki, hvort þið þekkið Zella,
Solo-guitarist og Mandolinspiller.

Flýti soppa fellir snar
faðir Toppa á þúfu,
skítur í koppi kellingar!
hvað er að hoppa á grúfu?

Prosa:

Svei! bja, ljótt! — Enginn ykkar hefir orðið
svo frægur að sjá prestsdótturina í Munkebjerg-by.
Ég ræðst ekki í að lýsa henni (henni jómfrú Louise),
því þið þarna bæjarmenn forstandið ykkur ekki upp á
landið; en ég segi ykkur svona í trúnaði, að hún sagði
mér sér þætti undarlegt, Jótar þekktu ekki hægri né
vinstri hlið og miðuðu allt við veraldaráttirnar, svo
að til að mynda prestskonur á Jótlandi segðu við
brjóstbörn: „Nu slåp det, din Pattesjæl! Saadan, kom
saa her over paa det nørre Bryst!"

Prosa:

Einu sinni á dögunum, þegar drottningin á
Eng-landi var að borða litla skattinn — því hún borðar
ævinlega litla skatt — þá kom maðurinn hennar út i
skemmu að bjóða góðan dag. ,,Guð gefi þér góðan
dag, heillin!" sagði drottningin; „hvernig er veðrið?"
Maðurinn drottningarinnar hneigði sig og sagði:
„Hann var regnlegur i morgun, en nú birtir upp;
ég lét taka saman, og svo má binda, þó þú farir —
ætlarðu yfrum í dag, gæzka!" „Já", sagði
drottningin. Hann hneigði sig þá aftur og sagði: „Ég verð að
flýta mér og låta fara að sækja hestana". ,,Gerðu
])að", segir hún. —

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0172.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free