- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
165

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 165 —

Nú fór drottningin að búa sig; því hún ætlaði
í orlof sitt yfir á Frakkland að finna kong og
drottn-ingu og fleiri kunningja. Hún var með gullskó, í
silf-ursokkum og silfurbryddu gullpilsi, með gullsvuntu;
og að ofan í gull-lagðri silfurtreyju, með silfurhúfu
og gullskúf í. — En þetta gull og silfur er allt eins og
ormavefur, og léttara en fis og þó hlýtt.
Þjónusturn-ar voru lika vel búnar; því þær fóru með, eins og
vant er, þegar drottningin ferðast.

Þegar drottningin var komin út á hlað, var allt
tilbúið, hestarnir og fylgdarmennirnir og
ráðgjafarn-ir og orlofsgjafirnar — á 6 hestum i silfurkoffortum
— og teymdi sinn kammerherra hvern hest ; þar voru
líka í ferðinni barúnar og kaupmenn og margt
kven-fólk, fyrir utan þjónusturnar, og nógir
meðreiðar-menn og lestamenn, og allt var vel búið. Drottningin
reið Gulltoppu — það er gullfextur færleikur, og
silkibleikur á lit, og hefir verið sóttur suður i heim;
en maðurinn hennar reið rauðum gæðingi, sem hann
á sjálfur. „Fáðu mér keyrið mitt, gæzka!" sagði
drottningin, og maðurinn hennar hneigði sig og fékk
henni keyrið; það var gullkeyri með silfurhólkum og
lýsigullshnúð á endanum; og svo var farið á stað.

Drottningin var allt af á undan — því enginn
hestur jafnaðist við Gulltoppu — og þegar komið var
ofan að sjónum, var sett fram drottningarskipið; það
er með silkisegli og filabeinsmastri, sem allt er
skrúf-að saman og gullneglt, allt úr horni og skelplötu og
bezta gangskip.

Þegar komið var út úr landsteinunum, og búið að
snúa við, kallaði drottningin þrisvar á land, og bað að
gá vel að heyjunum og öllu, meðan hún væri fyrir
handan; svo settist hún undir stýri að gamni sinu; en
það er silfurstýri, og leikur i hendi manns.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0173.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free