- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
182

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 182 —

heyri óminn af því hér, en er ekki enn farinn að
sjá corpus delicti.

Forl.; ég verð að hætta.

Adieu!

J. H.

TIL KONRÁÐS GÍSLASONAR.

Saurum, 2. Mai 1844.

Sæll og blessaður, allrahæstvirti, dýrmæti Sir!
og taktu mér það ekki illa upp, þó ég sé svo
djarfur að þúa þig núna i hundadögunum. Þessi
hersens Fuldmægtig sendi mér einhvern
kveðju-snepil frá þér og það var á að skilja sem þú
vær-ir eitthvað geðstirður út úr því, þú þættist eiga
bréf hjá mér, en þessi sami hersens segir sjálfur,
að Absurd-Komiken sé liðin undir lok og læt ég
mér það allt að kenningu verða, kunnandi mér
öngva betri siði en þið hafið þarna í höfuðborginni,
— bindindi til lifs og sálar, eins og þú veizt, allt
upp á gamla botnesku. Nú er einungis efnið
mið-ans að låta yðar hávelborinheit vita, að þú munt
mega búast við að fá að sjá framan í andlitið á
mér á mánudagskvöldið, kemur, ef þú vildir
virð-ast að vera viðstaddur á póstgarðinum eitthvað
stundu eftir miðaftan, þegar dagvagninn kemur.
Finnur skrifaði mér í gær ,,í mesta hasti", að þó
hann væri í peningahraki, réðist hann í að senda
mér hér með 10 dali, í von um endurgjald frá
fé-laginu, til þess ég gæti ferðast inn fyrir, til að vera
viðstaddur lagfæringu á öðrum fjórðungi
lands-ins. Nú komu raunar ekki þessir 10 dalir, en ég

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0190.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free