- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
181

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 181 —

í bréfinu til mín kalla þeir nú Fjölni okkar
Litla-Fjölni svo sem af skopi; — hvað ætli hann
verði stór í þetta sinn, og hvenær búinn, og hver
ætli gjöri svo vel og segi mér það?

TIL BRYNJÓLFS PÉTURSSONAR.

Saurum, 30. Apríl 1844.

Ég flýti mér nú, elskan mín góð! að senda þér
þetta dót frá Fiedler, ef þið kynnuð að vilja nota
það; verst er, ég hefi hroðað svo af
útleggingar-nefnunni, að ég er hræddur um, hún verði ekki
not-uð. Ég vildi samt fyrir mitt leyti, heldur en ekki,
það yrði prentað, ef það kemur ekki of seint, því þó
ekki sé mikið við ritlinginn í sjálfu sér, þá veit ég
ekki nema Fjölnir kunni að hafa gott af að fá þessa
„Medarbejdere" svona útum lönd, eða hvað
heldur þú?

Ég legg með til ykkar Konráðs þetta frá
Gísla á Selalæk, sem séra Jón Halldórsson gat um
í bréfi sínu. Þið sjáið nú, hvernig á öllu stendur.
Ég fyrir mitt leyti varð hissa á, að ekkert meira.
skyldi koma fram af ferðasögunni, ekki einu sinni
svo mikið sem dagbókarbrot. — Og nú er allt
kom-ið fram, sem hafa þyrfti til að semja ævisögu séra
Tómasar!! Ef þið eigið bréf frá honum, er ekki
vert að týna þeim; ég hefi sjálfur æði-mörg og hefi
frá þvi við byrjuðum að skrifast á haldið þeim
saman.

Hvaða ósköp gengur á fyrir M. Eirikssyni; ég

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0189.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free