Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 186 —
TIL PÁLS MELSTEDS YNGRA.
-
Kaupmannahöfn, 5. Júlí 1844.
Páll minn góður og sæll!
Hvernig tókst að tarna, heillin min góð! að
kof-inn brann ofan af höfðinu á þér? Ekki finnst mér
nú samt, satt að segja, svo mikið til þess skaða,
fyrst þú brannst ekki inni sjálfur, né neinir þinir,
og ekki svo mikið sem sviðnaði af þér augabrýrnar.
Eitt finnst mér meira til, að þið stukkuð burt af
Brekku, frá öskuhrúgunni. Ég held Álftanesið fari
senn að verða skemmtilegt, þegar þeir eru orðnir
tveir einir eftir, lektor karlinn og Skapti (ég tel þá
f. 1.) og Guðmundur heitinn í Hákoti. Loksins tókst
þá Skerjafirði að sigrast á skólabátnum; Finnur er
mjög aumur út af frændamissinum. Við höfum ekki
heyrt, hver hinn pilturinn var.
Gísli mágur okkar — Hraungerðisgráni — gat
til við mig hér um daginn, að á vori komanda
myndi æðarvarpið verða lagzt frá i Eynni og
kom-ið i staðinn ekki minna hrafnavarp. — Ég vildi
svona stinga þvi að þér, og spyrja þig að um leið,
hvað þú heldur Reykvikingum verði við, þegar
Sekri fer að senda þeim eggin, eins og vant er, en
biður þá að afsaka, það séu í þetta sinn „andskotans
hrafnsegg!"
Ég er kominn frá Saurum, eins og þú sérð;
en ekki er það samt nema um stundarsakir,
með-an Steenstrup er að ferðast með konungssyni um
Skotland og Færeyjar. Þú spyrð mig um þá
Inge-mann og Hauch. H. er allra-elskulegasti maður;
hann er hár og grannur og ólánlega vaxinn, allra
manna svartastur, blakkur og suðrænn í andliti,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>