Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 187 —
og sérlega fallega-ljótur, eins og þú þekkir, með
íjarska stórt nef og efra tanngarð, og allra manna
.stóreygðastur og úteygðastur; og samt sem áður
þarf ekki nema líta á hann, til að sjá hann er
flug-gáfaður. Hann er svo mikill ákafamaður í tali, að
hann varla kemur öllum orðum út, og blæs þá eins
og móður hestur; og svo er hann stundum líkur
Shakespeare, að hann segir t. a. m. á einum stað í
.Sveini Gratha:
„før skal du fange Vindens Hest paa Heden,
og binde den til Maanens blege Horn,
end du formaar" .. . o. s. frv.
Honum mættu tveir harmar í vetur; hann missti
dóttur sína, og konan hans skrifaði Novelle. Ingem.
■er allra-mesti spilagosi, stuttur og stubbaralegur, með
mikið hár og úfið, sem hefir verið bjart, en er nú
far-ið að grána; hann hefir breitt andlit, flatt, bratt og
lágt nef og mikið enni, lítil, grá, lífleg og skýrleg
augu; hann er afar-fljótmæltur og veður svo hvað úr
öðru, að það er oft illt að fylgja honum; hann er
fynd-inn og smáertinn, og ófús á að tala um skáldskap.
Hann segir, að einu sinni hafi þeir verið á ferð
saman, vindurinn og djöfullinn, og þegar þeir komu
að horninu á húsinu hans Hjorts (þar er
ævin-lega götusúgur), þá hafi djöfullinn sagt: ,,Bíddu
min hérna, vindur minn! meðan ég bregð mér inn
til kunningja míns", — en hann er liklega ekki
kom-inn út aftur enn!
Ingem. er nú const. Direktor síðan Waage dó.
Saurar sjálfir liggja lágt, og loftið er þar óhollt og
þokusælt, en fallegt er þar í kring. Andinn i bænum
er heldur en ekki smákaupstaðarlegur, og ekki held
ég visindi geti vel þrifizt, nema i stórborgum, eða
þá fyrir einstaka menn í sveitarró.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>