- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
196

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 196 —

öðru að snúast (lagabreytingunum að heiman, er
mér komu þá fyrst fyrir sjónir), og hafði því ekki
tíma til að semja skýrslu mína um íslands-lýsingu,
svo glögga og greinilega sem ég vildi. Ég leyfi mér því
að draga hana til almenns fundar, — því fremur
sem ég ræð af boðsbréfi yðar til þessa fundar, að
hann verði haldinn innan skamms.

Undirgefnast

J. Hallgrimsson.

TIL FINNS MAGNÚSSONAR.

Kaupmannahöfn, 16. Apríl 1845.

Allrahæstvirti, elskulegi herra etatsráð!

Ég er nú sem óðast að flytja mig í St.
Péturs-stræti 140—3. og á ekki mjög gott, því allir kalla
að mér, sem geta, til að mynda vertinn með
húsa-leigu & c.; þó er Sörin vor óþolinmóðastur, sem
eitt-hvað þykist eiga hjá mér fyrir þvott og þjónustu
og fer nú með þetta bréf, til að biðja yður um
mán-aðarpeninga mína fyrir næstliðinn Marzmánuð.

Ég læt fylgja kvitteraða blankett til
ávísunar-innar, svo S. geti sótt féð samstundis. Fyrirgefið
mér kvabbið!

Yðar hávelborinheita auðm. þ.

J. Hallgrimsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0204.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free