- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
197

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 197 —

TIL DEILDAR HINS ÍSLENZKA
BÓKMENNTA-FÉLAGS í KAUPMANNAHÖFN.

Um vorið 1842, þegar ég var að búa mig til
seinustu sumarferðar minnar á Islandi, fékk ég bréf
hinnar heiðruðu félagsdeildar og kvödduð þér mig
til að koma aftur hingað til Danmerkur og hjálpa
til að semja lýsingu íslands.

Ég þekktist það — og því fremur sem mig
lang-aði mest sjálfan til að því verki yrði framgengt; en
það mun öllum yður Ijóst, hvílíkan vanda ég tókst á
hendur.

Ég er kominn nokkuð á leið með minn hluta
„íslands-lýsingar", og þó skemur en ég vildi; ég
hefi hlotið að verja miklu meiri tima til
vísinda-iðkana þar að lútandi og til undirbúnings en til
samn-ingsins sjálfs; ég ætla mér að vanda það allt eins
og kostur er á.

Ég var ekki einfær um allt, sem koma verður í
þann hluta „íslands-lýsingar", sem hin heiðraða
fé-lagsdeild hefir trúað mér fyrir; ég hefi því skorað
sitt á hvern, alla vísindavini mina, íslendinga, svía
og dani, og hafa þeir, margur hver, brugðizt vel við
því.

Hið konunglega danska visindafélag veitti
fé-lagi voru i hitt ið fyrra 500 rbdl. með þeim skilmála,
að „Islands-lýsingu" yrði snúið á danska tungu,
eð-ur þó að minnsta kosti ágrip hennar samið á dönsku;
ég vil ekki neita, að mér þykir þetta undarlega
heimtufrekt, en fyrir mitt leyti vonast ég eftir að
geta fullnægt þeim skilmála kostnaðarlaust, með bók,
er heita á „Islands Naturforhold" og við lektor
Steenstrup höfum lengi verið að böggla saman.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0205.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free