Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 207 —
hafa náð einhverri af þessum ímynduðu
unaðsemd-um, þá er nautnin samt eins óviss, því dauðinn er
skjótfær engill, sem fyr en varði kemur að dyrum.
Þá fer hann, sem kallaður er, oft ómettaður, þótt
hann hafi til margra ára. samansafnað, því dauðinn
flytur boðskap hins eilífa.
Vér megum ekki elska heiminn, því hans gæði
eru fánýt. Það sést ljósast á bjástri þeirra, sem að
þeim leita. Margbreyttar eru þeirra eftirsóknir,
all-ar samt með meiri eða minni óþola og áhyggju. —
Það er sorglegur leikur, að sjá þessa blinduðu eigast
illt við, eftir því sem hver stendur öðrum í vegi, og
þreyta kapphlaup eftir sinni eigin fordjörfun, hvar
af margur ófriður rís, sem einatt spillir sambúð
manna, þannig eyðist þeirra líf undir hégómlegu
umstangi. Þeir erfiða og þreytast forgefins,
mett-ast kann ske stundum í bráð, og hverfa síðan
vonar-lausir af jörðu, því þeir hafa forsómað að safna sér
fésjóð á himnum.
Vér megum ekki elska heiminn, því hans
gæði eru oss ónóg. Vera kann, að þeim, sem
jarð-nesk lukka fellur í skaut, finnist stundum sem
hann uni heiminum, þegar hjartað er ofþyngt af
nautninni eða maðurinn vegna veraldlegra anna
ekki gefur sér tíma til að hugsa um sína ákvörðun.
Varla kemst samt þessi ánægja hærra en svo, að hún
geti orðið manni á borð við eitthvert
tilfinningar-leysi. Langvinn getur hún ei heldur orðið, því
manns-ins andi er ódauðlegur, og getur því varla
niður-lægzt svo í holdinu, varla orðið svo ólíkur sjálfum
sér, að hann ekki á stundum girnist eitthvað æðra
eða varanlegra en það, sem þessi heimur hefir á
boð-stólum, og það á meðan bezt gengur, en þegar
heim-urinn snýr við blaðinu, — og það mun hann gjöra
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>