Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 206 —
vér, sem búum í heiminum, verðum þó að brúka hannr
þá vil eg stuttlega leitast við að hugleiða, 1, hvers.
vegna vér megum ei elska heiminn, og 2, hvernig
vér getum rétt brúkað heiminn, án þess að elska.
hann. Guð gefi mér þar til náð fyrir Jesúm Kristum.
Vér megum ekki elska heiminn. Orsökina leggur
postulinn sjálfur til: Hver, sem elskar heiminn, segir
hann, i honum er ei kærleiki föðursins. Það er að
skilja: Hver sem festir hjartað við fallvaltan heim og
hans gæði, hann sýnir þar með, að hann ei elskar guð,
því hann óhlýðnast guðs vilja. Guð vill nefnilega, að
heimsins gæði skuli hressa og gleðja oss, svo oss
aukist kraftar til að gegna vorri köllun. Hann vill
þau skuli verða meðal i vorri hendi til að auðga oss
i góðum verkum. Þau eru þvi ekki sannarleg gæði,
heldur einungis meðal til góðs. En sá, sem elskar
heiminn, hann leitar sinnar farsældar i holdlegum
munaði; hann gleymir þess vegna guði og sinni
á-kvörðun, og metur skepnuna meira en skaparann.
Þetta er stakt vanþakklæti og hryggileg fásinna, sem
glötunina hefir í fylgd með sér, þvi sá maður getur
öngva hlutdeild átt í þeim fyrirheitum, sem faðirinn
á himnum hefir gefið sínum elskendum.
Vér megum ekki elska heiminn, þvi hans gæði
eru óviss. Fávislegt er að elta skugga, sem flýr þá,
er hann vilja gripa, og mikil mæða að binda hjartað
við óvissa von, sem einatt lætur til skammar verða,
en þetta gjörir sá, sem elskar heiminn, því jarðnesk
gæði eru hverful, heimsins útlit breytist, og
gleðinn-ar mynd stendur langt á bak við mann, þegar hann
loksins þykist vera kominn að því eftirþreyða
tak-marki; og hvað er það þá, sem maðurinn hefir meira
af allri sinni armæðu? Já, þó að maðurinn þykist
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>