- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
216

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 216 —

eyja. — Þann dag allan var stinningskaldi á
útnorð-an. — Um hádegi sigldum við milli Geirfuglaskerja
og Reykjaness. Hæsta skerið (Melsækken) er 15 til
20 faðma hátt, likt Skarfakletti í lögun, en mikið
stærra. Það var allt þakið í fugli. — Þar sáum við 3.
samsiglarann, skonortu (líklega Möllers). Um
mið-degisbil fór ég að verða sjóveikur, lá því niðri það,.
sem eftir var af deginum.

25. Laugardaginn; sama veður; — sást þá um
morguninn í norðri tindarnir af Eyjafjalla- og
Skaft-ár-jöklum. Ég var býsna sjóveikur; sat þó uppi lengi
um daginn, meðan landið var að hverfa. — Ekkert
skip sáum við þann dag. —

26. Sunnudaginn. Austankaldi, — fagurt veður,.
bjart og sjólítið. — Ég var nokkurn veginn frískur,.
— seinni part dagsins; spiluðum l’hombre. —
Norð-urljós um kvöldið og gott veður. —

27. Mánudaginn. Austanvindur gekk upp með:
stórviðri um dagmálin. Grátt loft og ljótt. —
Stór-sjórinn bylti skipinu svo baugspjótið stakkst i kaf. —
Ég var sjósjúkur töluvert, en sat þó uppi til að horfa
á óganginn í veðrinu. —

28. Þriðjudaginn. Sama veður, en nokkuð
væg-ara, og sjólagið þægilegra. — Galease var að sjá í
hlé á eftir okkur, og þótti mér nóg um, hvernig hún
veltist og hallaðist. — (Líkl. Nissen).

29. Miðvikudaginn. Likt veður og fyr, með
skúra-leiðingum.

30. Fimmtudaginn. Norðaustlægur vindur,
liálf-þykkt loft og nokkurn veginn gott veður.

31. Föstudaginn. Sama veður, nema nokkuð
hvassara, og skúraleiðingar. — Þá var ég orðinn
nokkurn veginn frískur aftur eftir sjósóttina.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0224.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free