- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
215

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 215 —

Tökum því vara á tímanum, fyrir hvers brúkun
■vér eigum þá einnig reikning að standa. Skoðum
skaparann í hans verkum, svo vér fáum lært að
treysta þeim eilífa, og tilbiðja þann almáttuga, —
lært að elska guð miskunnseminnar, og þar við að
gjöra oss verðuga hans elsku. Þá mun sá hverfuli tími,
með öllum sínum umbreytingum, aldrei fá gjört oss
kvíðafulla, — vonglaðir treystum vér drottni, tímans
óumbreytta stjórnara; hann er vor faðir, hann er vor
skjöldur og mikil laun. Amen!

DAGBÓK.

BYRJUÐ ÞANN 23. ÁG. 1832.

Ágúst.

23. Fimmtudagsmorguninn, klukkan 7, fór ég
um borð á Galeasen Christine Marie, ásamt eiganda
skipsins, kaupmanni P. J. Petersen. Kapteinninn á
skipinu er A. H. Bonde frá Sönderborg; ferðin var
,stofnuð frá Reykjavik til Kaupmannahafnar. Kl. 10
lygndi; lágum við í logninu allan þann dag á sviði,
á-,samt Michelsens Galease, sem farin var nokkrum
tímum á undan okkur frá Reykjavik. — Um kvöldið
var fagurt veður og norðurljós. — Ekkert nýstárlegt
sá ég þann dag, nema stóran beinhákarl, sem óð á
bæxlum kringum skipið. —

24. Föstudagsmorguninn, um dagmálabil,
sigld-ura við fram hjá Skaganum. Þar varð Michelsen á
eftir okkur. Sáum við þá 2 skip á undan okkur,
Nis-sens Galease og Sluppen Emilie á leið til Vestmann-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0223.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free