Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 219 —
lenti hún oft í toppinum á þeim. — Dálítil, hollenzk
Kuf flæktist fram hjá okkur um daginn, og ofbauð
mér að sjá, hvernig hún veltist. — Þar á móti mætti
okkur stór Fregat, sem stóð eins og klettur fyrir
sjóunum og gekk með öllu undir seglum. Það var
stolt sjón. —
FÁEIN ORÐ UM HREPPANA Á ÍSLANDI.
Eitt af því, sem vorir dagar heimta af hverri
stjórn, er heita vill réttvís og góð, og ávinna sér hylli
sinna undirmanna, er það, að skýlaus grein sé gjörð
fyrir meðferð á öllu því fé, sem almenningur hefir
greitt af hendi til einhverra nota fyrir þjóðina. Þessi
krafa er ekki einungis sanngjörn þegar gjöra er um
fjársjóðu landa og ríkja, heldur ber henni einnig að
fullnægja í hinum smærri félögum, sem skotið hafa
fé saman til framkvæmdar einhverjum ásetningi; og
það er margreynt, að þau félög, sem gjöra ljósa og
skýlausa grein fyrir atgjörðum sínum, komast
ævin-lega í mestan blóma, og kemur það til af mörgu, sem
hér skal verða drepið á seinna meir.
Eitt af þessum félögum eru hrepparnir.
Bænd-urnir í hverjum hrepp eru félagsbræður, sem allir
eiga að hjálpast til að auka velgengni í sveitinni og
koma góðri reglu á, svo lífið verði þeim öllum svo
arðsamt og gleðilegt sem auðið er; þeir eru
félags-bræður, sem eru skyldir að hjálpa hver öðrum, ef
einhver þeirra á svo bágt, að hann ætlar að komast
á vonarvöl, og að sjá þeim farborða, sem eru ungir
og munaðarlausir, eða svo gamlir og veikir, að þeir
geta ekki unnið sér brauð, og eiga þar sveit að lög-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>