- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
220

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 220 —

um. Þetta getur nú ekki orðið kostnaðarlaust, og því
eiga allir hreppsbændur sameiginlegan sjóð, sem
stofnaður er af fátækratíundinni og auka-útsvari
bændanna, sem hreppstjóri og prestur hjálpast til að
jafna niður á þá eftir sanngirni og beztu vitund um
eignir þeirra og ástand. En þetta útsvar er oft og
tíðum svo þungt, að eigi bændurnir að greiða það af
hendi með fúsu geði, þá má varla minna vera, en
þeir sjái, hvernig því er jafnað niður og til hvers því
er varið, eða sjái hreppsreikningana, svo þeir geti
gengið úr skugga um, að allt fari fram vel og
réttvís-lega. Þetta er bæði fyrirhafnarlítið, og þar á ofan
svo áriðandi, að enginn hreppstjóri ætti að skorast
undan því. M. Stephensen hefir líka, eins og von var
á, ráðið til þess mikillega í handbók sinni fyrir hvern
mann, blss. 68—69, og bent til þess um leið, hvernig
því yrði haganlegast fyrirkomið. Hann ræður til,
að þegar lokið sé hreppaskilum á haustin, og þegar
hreppstjóri og prestur eru búnir að jafna niður
út-svarinu á alla búendur, sem eru þess umkomnir, skuli
hreppstjóri rita skýran reikning, samhljóða
hrepps-bókinni, og senda hana rétta boðleið bæ frá bæ, svo
allir geti séð fjárhagi sveitarinnar, og að þeim sé
enginn óréttur gjör. En þykist einhver hafa orðið
fyrir halla, ætti hann að kæra það mál fyrir
sýslu-manni með allri siðsemi og beiðast hans úrskurðar,
og þó ekki fyr en hreppstjóri hefir séð ákæruna, svo
að hann geti gegnt henni og sagt ástæðurnar fyrir
sínum aðgjörðum. En finni menn villur í
reikning-unum, eða virðist auðséð, að eitthvað mætti betur
fara, ættu þeir að segja það hreppstjóra sjálfum,
svo það verði lagfært, sem skakkt er, og góð ráð
allra félagsbræðra geti komið í ljós. — Það er
auð-séð, að margt gott getur hlotizt af þessari aðferð,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0228.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free