- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
225

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 225 —

sagðist álíta það skyldu þeirra bændanna, að skjóta
saman handa hreppstjórum sínum, svo þeir fengju
nokkur laun, þó þeir gætu ekki orðið skaðlausir. Ef
þessi maður, eða einhver annar, bæri þetta mál upp
á þingi og legði það undir úrskurð sinna
félags-bræðra, þá væri gaman að vita, hvernig tekið yrði
undir það. Ef að, til dæmis, einhver gjörði það
frum-varp, að aukaútsvarið væri hækkað, svo
hreppstjór-inn gæti fengið 10 eða 20 dali um árið, án þess
fjársjóður sveitarinnar liði nokkurn halla af því,
eða þá að þessum lítilfjörlegu launum væri jaínað
niður á hreppinn af tveimur bændum og þeim
presti, sem vanur er að semja reikningana með
hreppstjóra, þá væri gaman að vita, hvernig
bænd-ur tækju undir það. Verið gæti, menn féllust á þetta
•einhvers staðar, og er þá enginn efi á, að yfirvöldin
samþykktu þá gjörð og lofuðu bændum að laima
sjálfir hreppstjórunum. En þá yrði um leið að gera
það að skilyrði, að bændur mættu sjálfir kjósa
hreppstjórana og velja upp aftur á þriggja eða
fjögra ára fresti, svo þeir gætu fengið sér nýjan,
ef einhver reyndist heldur duglitill.

Óskandi væri, íslendingar færu að sjá, hvað
félagsandinn er ómissandi til eflingar velgengninni
í smáu og stóru, og fylgdu i þvi dæmi annara þjóða,
að fara að taka þátt í almennings högum, hver eftir
sinum kjörum og stöðu i félaginu. Þessi andi hefir
^jört úr Englendingum svo vitra og volduga þjóð,
að hún bæði veit, hvað hún vill, og hefir nóg afl til
að framkvæma það, svo að frelsi hennar og
réttind-nm, heiðri og velgengni mætti vera borgið héðan í

15

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0233.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free