- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
226

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 226 —

frá*) — og þessi andi er alls staðar að vakna, og
hlýt-ur að verða hverri þjóð til heilla, sé hann réttilega
leiddur, og skammsýni eða harðúð gjöri hann ekki
að báli, af því þær fara að kefja hann. óskandi
væri, íslendingar færu að sjá, að það er aumt llf og
vesælt, að sitja sinn í hverju horni og hugsa um
ekkert, nema sjálfan sig, og slíta svo sundur félag
sitt, og skifta sundur afli sínu í svo marga parta
sem orðið getur — í stað þess að halda saman og
draga allir einn taum, og hugsa fyrst og fremsh um
heiður og velgengni landsins, sem öllum góðum
íslendingum ætti að vera í fyrirrúmi.

SUNDREGLUR PRÓFESSORS NACHTEGALLS.

AUKNAR OG LAGFÆRÐAR EFTIR ÍSLANDS ÞÖRFUM.

Öllum vöskum og efnilegum unglingum á íslandi,
sem unna góðri menntun, og íþróttum feðra sinnar
eignum við þessi blöð vinsamlega.

Kaupmannahöfn, þann 1. Marz 1836.

Útgefendurnir.

FORMÁLI.

Frá aldaöðli hefir sund verið kallað einhver hin
bezta og nytsamasta íþrótt. Það hefir verið tíðkað
meðal allra þjóða frá því sögur gjörðust, og það er
líka þess vert; það lífgar og hressir líkamann, eykur
þrek og áræði, og verður mörgum manni til lífs, að
ó-töldum öðrum kostum og margskonar gagni og gamni,

*) Væri hún nógu réttlát viC aBrar þjóðir. Óréttindin eru
vön ats hefna sln.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0234.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free