- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
234

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 234 —

hælunum uppi við þjóin, og því næst beygir hann
handleggina, og leggur saman lófana á brjóstinu, með
litlu-fingurna niður á við. Þá er líkaminn aftur
kom-inn í samt lag og áður.

Fingrunum á að halda fast saman, og rétta þá
vel, og eins úlfliði og olboga, og bera ekki
handleggina lengra aftur en áður var sagt. Lófarnir eiga að
liggja saman fyrir framan andlitið, þangað til
skrið-ið er komið að manninum í hvert skipti; þá snýr
sundmaður höndunum við, og ber þær aftur með sér;
líka er þess að gæta, að spyrna vel í með fótunum,
um leið og menn rétta þá frá sér.

Viðvaningum er vant að ganga bezt að læra
sundtökin, ef þeim er skipt niður í 3 kafla, og fyrst
er reyndur einsamall fótaburðurinn, þá
handburður-inn, og loksins öll sundtökin í einu. .Kennslumaður
telur þá „einn" — „tveir" — „þrir" á þennan hátt:

1. Fótaburður:

Þegar sagt er „einn", spyrnir sundmaður
fótun-um skáreitis frá sér, og réttir þá; við „tveir" skellir
hann þeim saman; og við „þrir" kreppir hann aftur
hnén, og dregur að sér fæturna eins og áður er sagt.

2. Handburður:

Við „einn" réttir hann handleggina fram: við
„tveir" ber hann þá aftur með sér; og við „þrír"
leggur hann saman lófana undir bringunni.

3. Handhurður og fótaburður í einu lagi:

Á fyrsta tímabili: réttir hann handleggina fram,
og spyrnir i með fótunum; á öðru tímabili: ber hann
handleggina aftur með sér, og skellir saman fótunum;
á þriðja tímabili: kreppir hann hnén, og leggur
saman lófana undir bringunni.

Sumir skipta sundtökunumi í tvö timabil, og
setja þá i fyrra timabilið það sem hér er sett i fyrsta

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0242.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free