- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
235

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 235 —

og annað. Þessa aðferð, sem hér er kennd, nota menn
við bringusund, og ræð ég öllum, að læra hana vel
á landi, áður en þeir fara að reyna til á floti. Sé það
ekki hægt, að fá hengigjörð, má sæmilega vel
hjálp-ast við kistil, eða annað þess háttar, og leggjast
flat-ur yfir um hann, en varast samt að låta vera mjög
hart undið lífinu.

4.

JJm sundgjörðina og hennar brúkun.

Ef sundstæðið er svo djúpt, að ekki nái niðri,
verður að hafa sundgjörð. Hún er svo til búin, að
belti er girt um mittið, og haf ður í því traustur
hring-ur, en í hringinn er brugðið reipi og hnýtt vandlega;
það á að vera 20 álnir, ef vel er. Kennslumaður
held-ur í reipið, og hefir vald á þeim, er syndir, og gætir
hans, þangað til hann er orðinn sjálfbjarga.

Það á að spenna sundgjörðina um mittið, en ekki
um bringuna, og ekki fastara en svo, að stinga megi
hendi undir hana. Ekki dugir samt, að hafa gjörðina
í sama stað á öllum; það verður að flytja hana, upp
eða niður, eftir því sem sundmanni hættir við að
sökkva meir að framan eða aftan.

Kennslumaður stendur á vinstri hlið við
sund-manninn þegar hann á að hlaupa á kaf. Hnútur er á
enda sundreipinu, og heldur hann í endann með
vinstri hendi, fyrir ofan hnútinn, og leggur svo
reip-ið 1 lykkjur upp í hendina, en heldur um það með
hægri hendi, tveimur eða þremur álnum fyrir ofan
hringinn. Nú þegar sundmaður steypir sér, lætur
hann reipið dragast í hægri hendinni, og sleppir eins
mörgum lykkjum og þarf úr vinstri hendi, meðan
hinn er að sökkva. Þegar slakar á reipinu, og fsrðin

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0243.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free