Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 248 —
hendinni og fótunum eru eins og í troðningi, en þ6
svo, að færast á úr stað. Ekki ríður á, að bera
fæt-urna til skiptis, og betra er þá að vera samtaka.
Ann-ari hendinni á að halda kyrri á brjóstinu, og synda
svo með hinni, þangað til sundmaður er orðinn
jafn-tamur á báðar. Svona á að synda aftur á bak og
á-fram, og læra vel að snúa sér, hvert sem þörf er á.
Björgunin sjálf.
Sá, sem ætlar að bjarga öðrum, verður að
var-ast að koma framan að honum, þvi þá er hætt við,
að maðurinn í lifshættunni, sem oft er búinn að missa
ráðið, grípi dauðahaldi utan um handlegginn á
honum eða fæturna, eða annars staðar um búkinn, og
dragi hann svo í kaf með sér; en vilji þetta til, tefur
það þann, sem ætlaði að bjarga, og getur lika orðið
honum að bana, ef kraftamunur þeirra er ekki svo
mikill, að hann geti losað sig.
Sá, sem ætlar að bjarga, á því helzt að koma
aftan að hinum, eða þá svo, að hann geti gripið
utan um handleggina eða mittið. Svona á hann að halda
honum, og låta hann liggja ofan á sér og á milli
fóta sinna, og halda svo að landi með
björgunartök-unum.
Það er bezt að búa sér til mann úr sefi, eður
taka strigapoka, langan og mjóan, og troða hann
full-an af marhálmi og fergini. Á þessum dólgi á nú að
spreyta sig, og binda við hann steina, þegar fram í
sækir. Trédrumbur er í fyrstunni full-góður, og
lær-ist sundmanni vel á honum, því hann er léttur, og
hægur í vöfunum; en ekki er hann eins góður og
pok-inn, þegar fara þarf að þyngja hann niður.
Þegar fram líða stundir, á sundmaður að bjarga
lifandi mönnum. Sundpiltarnir skiptast þá til að
bjarga hverjir öðrum, en ekki má taka aðra til þess^
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>