- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
247

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 247 —

Jjessi óhægindi, og góður sundmaður getur synt í
föt-unum, þegar hann reynir það í fyrsta sinni. Þó ætti
Jiver maður sundfær að reyna það nokkrum
sinn-um, til að kynna sér örðugleikann, sem því fylgir.
Ekki á kennslumaður samt að låta sundpiltana reyna
það alklædda, fyrst í stað; það er nóg, þeir séu í
skyrtu og langbrókum, og seinna meir í vesti og
peysu, og ríður ekki á, þeir séu meira klæddir.

13.

Að bjarga.

Hver piltur, sem nokkurt táp er í, og hefir haft
góða tilsögn í því, sem hér er kennt að framan, er
án efa orðinn svo góður sundmaður, að hann getur
bjargað sér sjálfum. En það er ekki nóg; hann á
líka að geta hjálpað öðrum, sem eru staddir í
lífs-hættu. Það er samt nærri því ógjörningur fyrir þann,
sem ekki kann að synda, nema á grúfu, og getur
orð-ið skaðræði fyrir sjálfan hann, nema því að eins,
að hann hafi lært að bjarga.

Björgunartökin eru sett saman úr baksundi og
troðningi, og ríður á, að hafa numið það
hvort-tveggja á undan til fullnustu, og þar á ofan
hrað-sund, og að stinga sér; því berist öðrum á, dugir ekki
að bíða þangað til honum skýtur upp. Þá er það
oft-ast nær um seinan.

Áður en farið er að bjarga, verður að læra:

Björgunartökin:

Þau eru eins og áður er sagt, sett saman úr
baksundi og troðningi; það á að synda aftur á bak með
fótunum og annari hendinni.

Líkaminn á að liggja hallur og líkara því, sem
legið er í troðningi, en á baksundi. Sundtökin með

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0255.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free