- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
265

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 265 —

heldur hann á hafskel, og hellir vatninu yfir höfuð
lausnarans. Hátign og alvörugefni skina af andliti
hans. —

Á vinstri hliðinni er:

Marta með barnið og Jóhannes.

María situr hugsunarfull með barnið Jesúm í
fangi sér; hún heldur handleggjunum utan um hann,
og hendurnar eru signar niður á kjöltu barnsins.
Jesús snýr sér við í faðmi raóður sinnar, réttir vinstri
höndina að Jóhannesi, til að klappa honum, og er að
lyfta hægri hendinni til að blessa hann. Jóhannes
heldur á guðslambsstafnum í vinstri hendi, en
legg-ur hina hægri hönd með trúartrausti á kné Maríu, og
þiggur blessun og bliðulæti frelsarans með lotningu
og tilbeiðslu.

Hægramegin á fontinum er:

Kristur að blessa börnin.

Þar situr Kristur, i þann mund, er hann hefir
mælt hin guðdómlegu orð: „Leyfið börnunum til min
að koma". Tvö börn standa frammi fyrir honum.
Yngra barnið hefir af sjálfsdáðum hlaupið frá
móð-ur sinni til hins blíða vinar barnanna og styðst við
kné hans, með barnslegri ást og trúartrausti. Eldra
barnið kemur auðmjúkt og lotningarfullt. Móðir þess
hefir lagt saman á þvi hendurnar, og sagt því að fara
svona, til að låta blessa sig. Á andliti Krists skín
há-leit blíða og hreinleiki sálarinnar. Hann horfir að
sönnu á eldra barnið, og leggur hægri höndina á enni
þess, og blessar það, en vinstri höndina leggur hann
á handlegg litla barnsins, eins og hann ætli að halda
því hjá sér — þvi honum er yndi að sakleysi þess.

Að baka til er letrið, sem áður er nefnt, og þar
fyrir ofan:

Þrír englar líðandi i lofti.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0273.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free