Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 264 —
pietatis causa donavit
Albertus Thorvaldsen
A. MDCCCXXVir *)
Norskur kaupmaður keypti samt þennan font, og
letrið var afmáð; en Thorvaldsen fór undir eins að
búa til nýjan, og lét höggva marmarann i Carrara, en
lauk sjálfur við fontinn i Rómaborg. Þessi fontur
er allt að einu og sá, sem kaupmaðurinn fékk, nema
hvað marmarinn er dálitið gráleitur, og ekki fullt
eins góður — því hinn hafði verið afbragð. Hann var
fluttur hingað til Kaupmannahafnar sumarið 1833,,
á herskipi því, er Galathea heitir, og stendur hann nú
i myndasmiðju Thorvaldsens i Charlottuhöll.
Fyrir-myndin (úr gipsi) var komin löngu áður, og
stendur þar i höllinni, uppi i myndasalnum stóra.
Þessi skirnarfontur er ferstrendur stöpull, 27
þumlungar á hæð og 201/2 þumlungur á hvern veg.
Á framhliðina er skorin:
Skírn Krists.
Frelsarinn stendur í Jórdan, með handleggina
krosslagða á brjóstinu, og hneigir höfuðið, til að
låta skirast. Ásjóna hans og limaburður eru fegursta
eftirmynd þess, sem var hógvær og af hjarta
lítil-látur. Jóhannes skirari hefir i vinstri hendi
guðs-lambsstafinn (agnus-dei-stafinn); en í hægri hendi
*) Þ. e.:
Albert Thorvaldsen
g’jör’öi smíðisgrip þenna 1 Rómaborg’,
og gaf hann
íslandi,
ættjörCu sinni,
1 ræktar skyni,
1827.
V
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>