- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
269

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

Stænderforsamlinger. Derom beder vi i det islandske
Folks Navn, vi beder og bønfalder og fordrer og tør
haabe, at en retfærdig og kærlig Konge og en
høj-hjertet og velvillig Nation ikke vil lade det lille, gamle
Broderfolk nedtrykkes dybere, gaa til Grunde,
græm-me sig til Døde, — og dette maatte dog ske, og vil
efter de bestaaende Forhold uigenkaldeligen ske, hvis
Islands politiske Udvikling i længere Tid skulde blive
hemmet ved nogen som helst væsentlig
Tilsidesæt-telse.

ÝMISLEGT VIÐVÍKJANDI
„STJÖRNUFRÆÐI EFTIR DR. G. F. URSIN".

I.

BOÐSBRÉF.

Svo fagur fróðleikur sem það er, að kynna sér
eðli himinhnattanna og komast í skilning á rás þeirra
um himingeiminn og lögmáli því, er þeir hlýða, þá
er það þó raunar, að alþýða hér á landi er harla
ó-fróð um slíka hluti. Er það ekki af því, að
Islending-ar mundu öðrum síður hafa girnzt að afla sér
slikr-ar þekkingar, er háleitust er kölluð [af] allri
ver-aldlegri fræði, og þó auðveld og yndisleg, ef þeir
hefðu haft tækifæri til þess. Miklu fremur er því nú
um að kenna, að það er ekki nema ofurlítið og þar á
ofan víða á dreif í bókum, er hingað til hefir verið
skráð um það efni á íslenzka tungu. Nú er svo ástatt,
að mér hefir gefizt tækifæri til að bæta úr þessum
bresti bókmennta vorra. Maður heitir Ursin,
háskóla-kennari og þjóðkunnur stjörnufræðingur i
Dan-mörku, og hefir hann fyrir skömmu samið bók þá,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0277.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free