Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 275 —
vísindi og reynsla þokuðu óðum lífsstefnu hans að
því verkinu, sem fegurst er af verkum mannanna,
að efla framför og hagsæld heillar þjóðar, sinnar
þjóðar og þjóðar feðra sinna. Vilji hans breytti sér
ekki, því hann var frá upphafi — alla þá stund, sem
vinir hans hafa þekkt hann — samur og jafn, hreinn
og ákafur og einbeittur, og þessi styrkleiki vilja hans
var studdur kristilegu trúartrausti, fölskvalausri
guðhræðslu og ljósri sannfæringu heimspekilegrar
í-hugunar, og þessi styrkleiki gjörði séra Tómas að
slíkum manni sem hann var; því þótt hann væri
mað-ur vel gáfaður, og gæddur miklum skilningi, átti
hann sér þó í því tilliti nokkura jafningja, en nú
standa allir á baki hans. Hann var útskrifaður úr
skóla vorið 1827, og fór samsumars til háskólans í
Kaupmannahöfn; gekk hann þá um haustið undir hið
fyrsta lærdómspróf með lofi (laudabilis), og ári
seinna leysti hann af hendi með sama vitnisburði
hið annað lærdómspróf, sem almennt er kallað hið
heimspekilega. Þeir, sem um þessar mundir þekktu
hann í Kaupmannahöfn eður hafa skrifazt á við hann,
vita vel, með hvílíkum fögnuði hann settist að brunni
vísindanna, og safnaði sér á stuttun^ tíma auðlegð
nytsamrar þekkingar, og einkum svo ljósu yfirliti
yfir samband hinna margbreyttu vísinda sín í milli,
að hann frá þessu tímabili hafði fyllilega áttað sig
í hinu ósýnilega ríki skynseminnar. Um vorið 1829
kom hann aftur að vitja fósturjarðar sinnar snöggva
ferð. Bar þá svo við, að nokkur kritur kom meðal
hans og einhvers af Reykjavíkur-kaupmönnum; mun
það vera nærri sanni, að það hafi í fyrstu risið af
orðkeppni um verzlunina. Þetta olli því, að Tómas
varð áskynja um, að skipráðendur í Reykjavik hefðu
tekið sig saman um að synja honum fars til Dan-
18*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>