Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 294 —
ekki afla sinn svo alls kostar vel, að hann geti orðið
holl fæða handa sjálfum þeim, og góð og falleg vara
til verzlunar. Það er alkunnugt, að skemmt og illa
verkað fiskæti er hverjum mat óhollara, og hlýtur
]>að einkum að koma fram á Islandi, bæði sökum ]>ess
tilbreytingin i matarhæfinu er svo litil og skorturinn
mikill á allri kornvöru og maturtum; og svo segja
margir vitrir menn og lærðir i læknisfræði, að
holds-veikin á Islandi muni mest vera að kenna miklu og"
einkum illa verkuðu fiskmeti. Þetta eitt mætti nu
virðast nóg til að låta sér annt um meðferð á
fiskin-um; en þess þarf eins við, eigi hann að geta orðið
góð-ur kaupeyrir. Það er hverjum manni auðskilið, að
]>egar kemur á markaðinn, muni bezta vårån bæði
ganga fyrst út og verða bezt borguð; og sé of mikil
vara saman komin, muni sú, sem bezt er, fá
kaup-endur samt sem áður, en hin, sem lakari er, hljóta
að liggja óseld. Nú er svo ástatt, að um hin síðustu
20 ár hafa fiskveiðar tekið ærnum framförum bæði
i Norvegi, Hjaltlandi, Nýfundnalandi og víðar*), og
svo mun og verða um skammt á Færeyjum, þegar
búið er að létta af þeim verzlunarokinu; þess vegna
stendur það á mjög miklu, að fiskur íslendinga fái
svo gott álit, að hann verði ekki smátt og smátt
öld-ungis út undan, eftir því, sem meiri fiskur verður
hafður á boðstólum. En hætt er samt við, að svo illa
kunni til að takast; því ég hefi oftar en einu sinni séð
islenzkan fisk svo illa verkaðan, að enginn maður vitdi
eiga hann, eða þá varla fyrir hálfvirði; oft hefi eg
líka heyrt kaupmenn kvarta yfir fiskverkuninni, og
ekki að orsakalausu, og ekki er langt síðan menn sáu
*) Sama má meö sanni sesja um ísland, slftau rýnikaS
var þar um verzlunarfrelsife.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>