- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
319

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 319 —

Skagafjarðarsýslu sakafallskassa samkvæmt
kongs-br. frá 25. Júlí 1808, § 4.

Loksins dirfist eg að geta þess, að hvað áhrærir
kostnað þessa máls við Landsyfirréttinn, get eg ekki
með nokkru móti séð, að hann eigi að greiðast af
þeim ákærðu persónum; það er ljóst af hlutaðeigandi
stefnuvotta áteiknun á héraðsdóminn, að þau Sölvi
og Björg hafa fyrir sitt leyti viljað sleppa öllu
app-elli, einungis til að fríast frá öðrum málskostnaði en
þeim, sem kominn var, þar þau mega lítið missa frá
uppheldi barna sinna. — Hlutaðeigandi amtmaður
hefir þar á móti frá réttvísinnar hálfu áfríað
dóm-inn fyrir Landsyfirréttinum, og mun því hæfa, að
kostnaður sá allur, sem þar af leiðir, lúkist af
opin-berum sjóði.

Að svo fyrirmæltu verður þá mitt auðmjúkt
uppástand,

að þau Björg Þórðardóttir og Sölvi Þorbergsson verði
að öllu leyti frí fundin — eður,

ef sá hái Landsyfirréttur ekki álítur mínar
fram-færðu söksemdir fyrir þessu uppástandi nægar, þá:
að þau Björg og Sölvi gjaldi hvort um sig 3 rbd.
36 sk. silfurverðs til Skagafjarðarsýslu
sakafallskassa og Björg þar að auki 2 rbd. silfurs til
jústits-kassans, en kostnaður málsins við Landsyfirréttinn
jafnist á Norðuramtið.

Legg eg þannig mál þetta í dóm, en áskil mér þó
rétt til frekari andsvara, ef actor gefur mér þar
tilefni til.

Reykjavik, þann 11. Júlí 1831,
undirgefnast

J. Hallgrímsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0327.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free