Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 318 —
vegna þess, að það er sagt um karl og konu, sem i
þeim forboðnu liðum, hvar hjónabandsleyfis alls ekki
var að vænta, hafa undir trúlofunar-yfirskini
sæng-að eða alið barn saman, hvar á meðal hjónaband með
bróður-ekkju þá var reiknað; en undir eins og
til-skipan frá 23. Mai 1800 hefir ákvarðað, að
konungs-leyfi fáist til þessa hjónabands, liggur í augum uppi,
að laganna hótan fyrir þá öldungis forboðnu liði, nær
ekki lengur til þess áminnsta tilfellis.
Það kann nú að vera, að þess háttar
smá-meinbuga-barneignir ekki ættu að komast með öllu strafflaust
af, en þar sem lög ekkert straff ákveða, og
yfirsjón-in annars er óskaðnæm, virðist ísjárvert fyrir
dóm-ara, að skapa straff í hendi sér, kann ske stærra en
löggjafarinn sjálfur hefði ákveðið; að eg ekki tali
um, hvað það yfir höfuð er tilgangslítið, þar
hegn-ingin kemur á þann brotlega óvaran, sem ekki gat,
þá hann drýgði yfirsjón sína, þekkt það straff, sem
þá var ekki til, og þess vegna hefir ei heldur sýnt
neitt virðingarleysi fyrir lögunum; eins litið og
breyskleiki þeirra hér ákærðu hjónaefna (það er
nefnilega að ráða af aktinum, að þau muni sækja um
hjónabandsleyfi) hefir traðkað rétti nokkurs manns.
— Gefist því engin mér ókunn hér á landi gildandi
lagaboð, sem ákvarða vissa sekt fyrir þetta tilfelli, get
eg ekki annað en hátiðlega prótesterað, að nokkrar
fébætur verði lagðar á Sölva og unnustu hans. Mér
hugkvæmist að vísu, að stóri-dómur leggur 12 aura
sekt við barneignum í þeim liðum, hvar konungsleyfi
þá mátti fá til hjónabands. Sé nú gjörlegt að blanda
öllu svo saman, að fylgja stóra-dómi í þessari grein
til þess að festa fætur á einhverju, verður sekt þeirra
hér ákærðu persóna rétt metin til 3 rbd. 36 sk.
silf-urverðs, eigi þau annars nokkrum útlátum að sæta;
og mundi þá næst, að fébætur þessar greiddist til
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>