- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
321

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 321 —

ari ákæru vona eg því, að Arngrímur sleppi sýkn
saka.

Hvað hinni sakargift Maríu viðvíkur, þá er hún
eins ósönnuð. Framburður hennar hér um missir sitt
gildi við það, að hún er Arngrims óvildarmaður, og
veikist enn meir, þá að gætist, að hún fyrst fer að
uppljóstra spýtnastuldinum árinu eftir, að hann átti
að hafa skeð, jafnframt þeirri ósönnuðu ákæru, að
hann hafi unnið smánarverk á henni sjálfri. Þessum
spýtustuldi er líka af öllum þeim ákærðu
sameigin-lega þverneitað; og ekki get eg heldur séð af
skoð-unargerðinni frá 13. Janúar, hvar 12 álna tréð úr
Þvottáreyjum ætti að vera niður komið í húsunum í
Stekkjarhjáleigu. Þessi ákæra vona eg því einnig
falli marklaus, og er þá sjálfsagt, að hjónin í
Bjarg-arrétt, Jón Pálsson og Ingibjörg, verði að öllu frí
fundin.

Þar á móti hefir Arngrímur sjálfur meðkennt, að
hann án landsdrottins vitundar hafi með hjálp konu
sinnar, Guðrúnar, flutt til bæjar sjórekna spýtu, sem
hann seinna brúkaði í skemmustoðir og nú er virt
fyrir 1 rd., 48 sk. Fyrir þetta tiltæki eru þau
Arn-grímur og Guðrún orðin straffsek, og kemur þá til
yfirvegunar, hvað hörð refsing þeim hæfi. — Hvað
Arngrim áhrærir, þá er aðgætandi, að’ hann einu
sinni áður er dæmdur fyrir þjófnað, því
Hæsta-rétt-ar-dómur frá 25. Október 1821, sem seinna er
geng-inn yfir honum, er að héraðsdómarans vitni enginn
þjófsdómur, hvað þessum háa rétti víst er kunnugt.
— Nú mun Arngrími þvi hæfa straff fyrir þjófnað
framinn í annað sinn, sem með tilliti til þess, hvað
lítils virði þýfið er, og hversu það berst honum í
hendur, sem og hins, að hann ekki tók tréð til
ann-ars en hressa við bæinn á jörð eigandans, sýnist eiga
að velja svo vægt sem að lögum má; og fyrir þetta

RIT J. HALLGR. II. 21

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0329.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free