- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
323

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 323 —

Brynjólfur Svenzon dæmist til, auk
málskostnaSar-útláta, annaðhvort að borga til Hvolshrepps
fátækra-fjárhirðslu, fyr-nefndi 50 rbd. og sá síðar-nefndi 20
rbd. silfurs, ellegar að justitsen reserverist ákæra
gegn þeim fyrir þeirra væntanlega ólöglega breytni í
þessu máli; og til röksemda fyrir þessari réttarkröfu
hefir hann leitazt við að sýna, 1) að meðhöndlan
málsins í héraði sem pólitímáls væri ólögmæt, og 2)
að undirdómarinn hafi með aðgjörðum sínum, áður
en málið kom fyrir hans rétt, gjört sig suspect og
inhabil. — Báðum þessum sakargiftum er mér skylt
að leitast við að hrinda, og leyfi eg mér því að svara
þeim í hvoru lagi á þennan hátt:

1.

Sækjandi málsins hefir þess þá einkum getið, að
málsgjörðirnar frá héraði gefi öngva fullnæga
upp-lýsing um það, hvort sökin eftir sínu eðli eigi að
álítast sem jústitssök, og er það að vísu með
sann-indum sagt, að svo miklu leyti, sem engin rök eru
fram komin fyrir því, hvort kýrmeiðslin sé að álíta
sem voða- eða her-verk, og þess vegna ekki er hægt
að sjá, hvort tilræðið gat heyrt undir réttvísinnar
ákærur. — En þar eð fororðningin af 10. Júlí 1795,
§ 22, hefir leyft að sættast á öll þess háttar mál, er
það samt víst, að sökin undir öllum kringumstæðum
mátti meðhöndlast sem privat-mál. Nú hefir
tilskip-anin frá 20. Október 1819 boðið, að þess háttar
pri-vat-mál („Fornærmelser i Ord eller Gerning",
sam-anber 1. 10. Júlí 1795, § 22) skuli meðhöndlast og
dæmast fyrir pólitírétti, til þess að spara
hlutaðeig-endum kostnað og fyrirhöfn, hverju lagaboði
hér-aðsdómarinn hefir fylgt, og hygg eg hann þar fyrir
megi reiknast vítafrí; en sem pólitímál sýnist mér,
að þessi sök sé fyrir réttinum í öllu löglega með-

23*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0331.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free