- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
325

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 325 —

ana, á hér enn síður við. Þær upplýstu
kringumstæð-ur kasta ei heldur minnsta hlutdrægnisskugga á
dóm-ara-aðgjörðir herra Svenzons í málinu, hvar-um
skrifleg eigin meðkenning sr. S. Thorarensens og
klagandans, Filippusar, ber ljósast vitni; og með
hverju hefir þá herra Svenzon gjört sig suspect og
inhabil dómara? En verði þvi ei svarað með
full-nægum röksemdum, á sú fyrir pólitiréttinum
inn-gengna sáttargjörð að standa órjúfanleg samkvæmt
fororðningunni 5. Júli 1793, § 8, og er þá múlktin,
sem Filippusi með pólitidómarans úrskurði er
uppá-lögð, væntanlega oflítil til að koma undir þessa háa
réttar atkvæði (fr. 11. Júlí 1800, § 10).

Loksins vil eg og þess geta, að gefi sá hávísi
rétt-ur ofanskrifuðu forsvari meðhald, virðast öngvar
á-stæður til, að krigskancellisekreteri Bonnesen borgi
nokkuð af kostnaði þessa máls áfriunar, og mun hann
þá eiga að lúkast af opinberum sjóði.

Því er það mitt auðmjúkt

uvpástand,

að sú sáttargjörð og réttarúrskurður, sem fram fór
fyrir pólitírétti að Velli þann 3. Nóvember f. á.,
dæm-ist óraskanleg að standa; að krigskancellisekreteri
Bonnesen og examinatus juris Svenzon frífinnist að
öllu leyti fyrir sækjandans ákærum i þessu máli; en
kostnaður málsins lúkist af almennum sjóði.

Legg eg þannig málið i dóm, en áskil mér þó rétt
til frekara tilsvars, ef þörf krefur.

Auk þessa málsvarnarskjals hefi eg þá æru að
framleggja i þann háa Landsyfirrétt 3 meðfylgjandi
skjöl, sem eg hefi meðtekið með herra justitiarii bréfi
til min af 26. þ. m.

Reykjavik, þann 30. Janúar 1832.

Undirgefnast

/. Hallgrímsson.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0333.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free