- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
357

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 357 —

— 14. 1. a. n., „hugvekjur" séra Tómasar voru tvær af þeim
„þrem ritgjörðum", sem 17 landar i Höfn gáfu út þar sama árið.
Sbr. Bréf T. Sæm., bls. 280—81. — 11. 1. a. n., „spóann", sbr.
bls. 72—73, m. aths. — 9.—10. 1. a. n.; Skúli Thorlacius var sonur
Þórðar sýslumanns Skúlasonar rektors Thorlaciusar; sbr. bls.
40, m. aths. — Skúli var lengi fulltrúi við ríkisskjalasafnið í
Höfn; dó 25. Nóv. 1870. Hann var einn af Fjölnismönnum. Eftir
hann er sagan „Góður snjór" í Fjölni 1843, sem Konráð hefir
eignað Jónasi i Fjölni 1847 (IX. árg.), bls. 5. Sbr. Fundabók
Fjölnisfélags, Eimr., 32. árg., bls. 276 og 278. — 9. 1., „aðra
hugvekju"; hann mun eiga við skopleikinn „Bókasalan", sbr. bls.
66, m. aths. — 5.—6. 1., „sækja um brauð", sbr. bls. 59—60, m.
aths. — Bls. 69, 1. 1.; Gísli Hjálmarsson bjó þá á Hallormsstað
og fékkst við lækningar, próflaus. Hann fór til háskólans í Höfn
næsta sumar, 1842, og hélt áfram námi. Sbr. I. b., bls. 360. —
5. 1., „kryfja kútmaga", sbr. bls. 62. — 6. 1., „kroppa
(skelet-tera) arnir", sbr. dagbók Jónasar frá þessum vetri, III. b., bls.
125—35. — 9.—10. 1., „brauðalýsingarnar", sbr. bls. 42 hér, m.
aths. — „veðurbókunum", sbr. bls. 36—40, m. aths., bls. 53, 56
og 61. — 13. 1.; Fjölnir kom ekki út þessi ár, ekki fyr en Jónas
var kominn aftur til Hafnar. — 14.—15. 1., „Alþing hið nýja"
(I. b., bls. 79—81, m. aths.) kom í næsta (VI.) árg. Fjölnis; en
„Thorvaldsens-kvæðið" (16. 1., sbr. bls. 31, m. aths.) var
prent-að aftan-við ævisögu hans, sem kom út þetta ár í Höfn. — 17.
1., „5 dali", tillagið eða gjaldið fyrir Fjölni. — 18. 1.,
„skólan-um", latínuskólanum, sem átti að flytja aftur til Reykjavíkur, í
nýrri mynd. — Þegar úr þvi varð nokkrum árum siðar og
Svein-björn Egilsson varð rektor, var Konráði veitt þar
kennaraemb-ætti, 27. Apríl 1846, en aldrei varð þó úr því, að hann færi heim
og tæki við því. Sjá t. d. Tímar. Bókmfél., XII., 72—73. — 19. 1.,
„Scheving", dr. Hallgrímur, kennari; sbr. bls. 8—9 hér og V. b.,
bls. XXX. — 23. 1., „Melsted", Páll, síðar málaflutningsmaður
og sögukennari, sambýlismaður Jónasar á Garði. Jónasi hefir
þótt undarlegt, að hann skyldi ekki vera boðinn, en óvíst er,
hvort það hafi verið Páli ao kenna. — Páll kvæntist 30. Des.
1840 Jórunni Isleifsdóttur háyfirdómara á Brekku á Alftanesi,
Einarssonar, systur Gísla Isleifssonar (Einars; sbr. I. b., bls.
320, og „Dægradvöl", bls. 38). Páll var að eins 5 árum yngri en
Jónas, en dó ekki fyr en 1910, nær tíræður. í Sýslum.-æfum, IV.
b., bls. 190—91 og 362—64, er stutt yfirlit yfir ævi hans, en
gerst segir hann sjálfur frá ævi sinni allt til ársins 1891 í
End-urminningum sinum, sem Fræðafélagið í Höfn gaf út 1912, á
aldarafmæli hans. — Hann var sonur Páls sýslumanns Melsteds,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0365.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free