- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
358

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 358 —

kammerráðs, síðar amtmanns. — 24. 1., „Frökenin"; svo var
Jórunn nefnd venjulega á Álftanesinu, að útlendum sið, meðan
hún var ógift (sbr. „Dægradvöl", bls. 38). — 25. 1., „Gvöndur
okkar", ef til vill Guðmundur frá Ási í Vatnsdal, Guðmundsson,
bónda þar. Hann var fæddur 11. Ág. 1807, stúdent 1832 (í
heima-skóla). — Hann varð löngu síðar, 1861, prestur, fyrst að
Staðar-hrauni, síðan til Breiðuvíkurþinga og loks í Nessþingum; d. 1875.

Bls. 70—72. — TIL PÁLS MELSTEDS SÝSLUMANNS.
24- Apr. 1841. — Ehr. í hrs. Lbs. 147 fol., á heilörk, en á 4. bls.
er utanáskriftin ein: „Velbaarne Herr Kammerraad Sysselmand
P. Melsted, Hjálmholti". — 12. 1. a. n., „conditio sine qva non",
óhjákvæmilegt skilyrði. — 4. 1. a. n., „í sumar", nefnilega á 2.
fundi embættismannanefndarinnar í Reykjavik. Um þann fund
og það mál, sem Jónas ritar hér um, má sjá í ævisögu Jóns
Sig-urðssonar eftir Pál E. Olason, I. b., bls. 143—47, o. s. frv., og
svo í Tíðindum frá nefndarf. 1841. — Bls. 71, 2. 1., „andlega
kraftinn", orð séra Tómasar Sæmundssonar í grein hans um
Alþingi í „Þrem ritgjörðum". — Páll vildi hafa Alþingi í
Reykjavik. — 7. 1., Bardenfleth hafði verið stiftamtmaður. ■— 8. 1.,
„prins Fritz", ríkiserfingi, síðar Friðrik 7. Hann kvæntist, í
annað sinn, 10. Júní 1841. Bardenfleth og hann voru góðir vinir,
þótt ólíkir væru. ■— 9. 1.: Þorkell Hoppe var bróðir Peters F.
Hoppe stiftamtmanns, sem Jónas kvað til fyrir skólans hönd
1829, sjá I. b., bls. 29—30, m. aths.; sbr. einnig kvæðið til
eftir-manns hans á bls. 239, m. aths. — Sbr. e. fr. ritið íslendingar í
Danmörku, eftir dr. Jón Helgason, biskup, Rvík., 1931, bls. 31—
32. — 10. 1.; Þórði Guðmundssyni var veitt Gullbringusýsla 14.
Jan. 1841. Um hann sjá Sýslum.-æfir, IV., 367—69. — 11. 1.,
Norðursýsla = Þingeyjarsýsla. Skifting hennar fór fram þetta
ár, en 10 árum síðar voru þær sýslur aftur sameinaðar í eitt
lögsagnarumdæmi. — 18. 1., „haud", 2. einkunn. — 19. 1., „laudi",
1. einkunn. — P. Havsteen, sbr. I., bls. 128—29, m. aths. •— E.
Briem, Eggert Ólafur Gunnlögsson Briem; sjá um hann í
Sýslum.-æfum, II., 249, og víðar. Hann var faðir Eiriks prófessors og
þeirra mörgu systkina. — 21. 1.; Bornemann, Matthias Hastrup,
var lögfræðingur. Hann mun almennt talinn hafa andazt 29.
Okt. 1840. Sjá Bricka, Biogr. Lexikon, II., 538—40. — 22. 1.;
Algreen-Ussing, Tage, stórmerkur lögfræðingur og
stjórnmála-maður, f. 1797, d. 1872. Sjá Bricka, XVIII., 130—34. Hafði
af-skipti af íslenzkum stjórnmálum á stéttaþingunum í
Hróars-keldu. Hann varð aldrei konungsritari, en borgarstjóri varð hann
í Höfn eftir fá ár. — 1.—2. 1. a. n.; Balthasar Matthias
Christen-sen var einn hinna merkustu stjórnmálamanna í Danmörku; f.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0366.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free