- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
366

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 366 —

5. Sept. 1812, d. 15. Febr. 1880), var skipaður 1. Febr. 1840
læknir í syðra umdæmi Vesturavntsins, en fékk 25. Des. 1844
embætti i Danmörku. Hann var aldanskur. — 19. 1.,
„Rembi-hnút"; Rembihnútur (Practica legalis. Nodus Gordius) er eftir
Jón Daðason í Arnarbæli. Ýmsar uppskriftir eru til, t. a. m. i
hrs. Árna Magnússonar og hrs. Bmf. Ritið mun vera frá miðri
17. öld. Séra Jón var fæddur 1606, dó 1676. — 23. 1.; séra Jón
á Helgafelli (d. 1844, 35 ára) var Guðmundsson, bróðir séra
Þorgeirs, er Jónas orti til, sbr. I. b., bls. 59—61; kona séra Jona
var Anna, systir Sveins kaupmanns Guðmundssonar á Búðum
og Guðmundar, sem Jónas orti eftir undir nafni Péturs, bróður
þeirra, sjá I. b., bls. 104—5, m. aths. — 25. 1., „yfir að
Staðar-felli"; þangað má sjá ofan-af Helgafelli. — 30. 1., „séra Pétur",.
Pétursson á Staðarstað, siðar biskup; Jónas var vinur þeirra
bræðra allra. Séra Pétur var þá ekkjumaður. — Sigríður var
dóttir Boga Benediktssonar á Staðarfelli og talin ’beztur
kven-kostur á Vesturlandi. Þau giftust 28. þessa sama mánaðar. •—
Bls. 91, 1. 1., „Kara" var stór tík, af útlendu kyni. Atti séra
Pétur hana lengi siðan og hafði hana með sér til Reykjavíkur,
er hann flutti þangað 1848. Sbr. Æfis. dr. Pjeturs Pjeturssonar
biskups eftir Þorv. Thoroddsen, Rvík 1908, bls. 32 og 55. •—
Kara hefir verið í fylgd með Jónasi, þegar hann „trað með
hundi og hesti hraunið" umhverfis Skjaldbreið 14. Júlí. Segir
Páll Eyjólfsson (Dvöl, 6., 8), að hún hafi verið „stór,
svart-flekkóttur hundur, með lafandi eyru". — Kara er latneskt orð
(cara, þ. e. kæra). — 7. 1., „Arnkelshaugur" goða er við
Álfta-fjörð, sunnanvert. Enn eru dálitlar leifar af honum. Um hann
sjá Kålund, Isl. Beskr., I., 450, Árb. Fornlfél. 1882, bls.
97—98,-1897, bls. 14, 1900, bls. 10, og 1932, bls. 26—27.

Bls. 92—97. — TIL J. STEENSTRUP. 17.—18. Ág. 1842.
— Ehr. var í eigu Joh. Steenstrups próf., ritað á 2 heilarkir,
sina hvorn daginn. — Þessi bréf Steenstrups til Jónasar, sem
hann getur um á bls. 92, eru öll til, i nr. 13, fol., i hrs. Bmf. »—
4. hefði átt að teljast næst 1., en er ekki dagsett. — Bls. 93,
2.—3. 1. a. n.; um Hólamóðu og Gufuskálamóðu sjá Enarr. hist.
Eggerts, bls. 103—5, og ferðabók hans, bls. 280; e. fr. Kålundä.
Isl. Beskr., I.. 420, og Árb. Fornlfél. 1900, bls. 19—20. — Bls.
94, 23. 1., „den arme Kone", sjá bls. 89, m. aths. — Bls. 96, 12.
1.; Sigurður Gunnarsson var leiðsögumaður Schythe austur á
Austfjörðu sumarið áður, sbr. Landfrs. ísl., IV. b., bls. 26. Um
séra Sigurð sjá t. a. m. sama rit, bls. 54—59. — 18.—19. 1.; um
Krug von Nidda (sbr. bréf til J. St. 1. Marz s. á.), og kenningar
hans um myndun íslands, sjá Landfrs. ísl., III. b., bls. 230—32..

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0374.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free