Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 367 —
Hann ferðaðist 1833 hér á landi og var þá rúmlega tvítugur,
f. 1810; d. 1885. Hann varð námafræðingur. — 21. 1., „Præsten
paa Brjánslæk" var séra Hálfdan Einarsson, síðar prófastur á
ísafirði (Eyri við Skutulsfjörð), faðir Helga lektors og afi
drs. Jóns biskups. — 23.—24. 1., „den sorte Vegetationsskifer";
sbr. t. a. m. Ferðabók Þorv. Thoroddsens, II.. 22.
Bls. 98—99. — TIL FINNS MAGNÚSSONAR. 6. Sept. 1841.
■— Ehr. í ríkisskjalasafninu í Höfn, skrifað á litla kvartörk;
4. bls. alauð. — 8. 1., „framhaldið af fornfræðaskýrslu"; það
er nú í hrs. J. Sig., nr. 125, 4to. Finnur hefir lagt þar með
skýrslu um þá hluti, sem Jónas gaf eða afhenti
forngripasafn-inu í Höfn 7. Mai 1843. — Upphaf „fornfræðaskýrslu" sinnar
hafði Jónas sent frá Ólafsvík með bréfi 9. Ág. s. á. — 2. 1. a. n.;
Bjarni amtmaður var jarðaður 4. Sept. — Um ferð Jónasar
norður sjá t. a. m. V. b., bls. CXXIII.
Bls. 99—100. — TIL J. STEENSTRUP. 16. Sept. 1841. —
Ehr. var í eigu Joh. Steenstrups próf., ritað á litla kvartörk;
á 4. síðu er utanáskriftin: „S. T. Hr. Naturforsker J.
Steenstrup, Kjøbenhavn, Frederiksberggade N. 13, 1 Side S.", en
dreg-ið hefir verið yfir bæjar- og götu-nöfn og skrifað hjá: „Lector
ved Sorö Academie". — Bls. 100, 9. 1.; um maurunginn sjá ritið
„Fiskarnir" eftir Bj. Sæmundsson, bls. 221 nm. — 10. 1., „Br.v."r
þ. e. „Brændevin".
Bls. 100—105. — TIL J. STEENSTRUP. 4.-6. Okt. 1841.
— Ehr. var i eigu Joh. Steenstrups próf., skrifað á 2 heilarkir,
sem ekki eru eins, enda virðist hin síðari skrifuð 6. Okt., en hin
fyrri 4. Okt., eða jafnvel 24. Sept., bví að bá dagsetning hefir
Jónas skrifað fyrst, en síðan sett strik yfir hana og skrifað „0
Snak!" fyrir ofan og „4. Oct" fyrir neðan. Nær öll 3. bls. síðari
arkarinnar er auð, og á 4. bls. er áritunin: „S. T. Herr
Konsti-tueret Lektor Japetus Steenstrup, Sorø". — Bréfið er innsigiað
með innsigli Jónasar, með stafnum I. — Allur fyrri hluti
bréfs-ins hefir áður verið prentaður í Mindeskr. Jap. Strps., Kh. 1914,
I, 51—52, og síðan í Eimreiðinni, XX., 137—38, ásamt nokkrum
orðum um dvöl Jónasar í Sórey fám árum síðar. — Bls. 100, 9.
1. a. n., „dit Brev"; það er nú í hrs. Bmf., nr. 13 fol., upphafið
ódagsett, en framhaldið skrifað 2. Sept.; langt og merkilegt bréf,
einkum viðv. Steenstrup sjálfum, ferð hans til íslands, liðan
hans, sem ekki var góð, embættisveitingu í Sórey og
fyrirhug-aðri giftingu, en að sumu leyti er það um sendingar Jónasar. ■—
Bls. 101, 8. 1. a. n., í fyrri nmgr., „paa Stranden i Aðalvík";
sbr. upphafið á bréfi Jónasar til J. St. 1. Marz 1841. — 6. 1. a. n.,
„tyske Rejsende"; ókunnugt, hverja átt er við; sömul., hver
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>