- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
387

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 387 —

Hólma 12. Okt. 1840. E. fr. Bréf T. S., bls. 183. Jón prófastur
yngri dó 2. Júní 1862. Hann varð aldrei alþingismaður. En
al-nafni hans, Jón Jonsson (Johnsen), yfirdómari (síðar
bæjarfó-geti í Álaborg), var þingmaður Árnesinga 1845—49. •— 19.—
20. 1., „hvernig fór með félagslögin", nefnilega
Bókmenntafé-lagsins, á fundum, sem Hafnardeild þess hélt 14. og 22. Sept.
e. á. Á fundi deildarinnar 22. Des. 1842 bar forseti, Finnur
Magnússon, það upp, „að kosin yrði nefnd til að safna og raða
niður lagagreinum félagsins, sem væri á víð og dreif, og stinga
upp á breytingum, ef þurfa þætti; var það samþykkt með
at-kvæðafjölda; voru kosnir í nefnd þá 3 menn: Herra Jónas
Hail-grímsson með 13 atkvæðum, skrifari deildarinnar (Jón
Sigurðs-son) með 11 og Herra Brynjólfur Pétursson með 10 atkvæðum.
Deildin óskaði, að það verk yrði búið fyrir ársfund, og herra
Konráð Gislason stakk upp á, að hið nýja lagafrumvarp yrði
borið upp á fundi". — Á ársfundinum, 18. Febr. 1843, kom
mál-ið ekki fyrir, en 8. Apríl sendi Jónas forseta frumvarp
nefndar-innar, og á næsta fundi, 6. Mai, skýrði forseti frá, að tvö
laga-frumvörp væri samin þann dag frá félagsmönnum, en eitt hefði
ekki enn gengið milli allra; er þar sennilega um uppskriftir af
þessu frumvarpi laganefndarinnar að ræða. A fundinum 14.
Sept. „var tekið til yfirvegunar lagafrumvarp nefndar beirrar,
sem sett var 22. Des. f. á., og var útkljáð um 11 enar fyrstu
greinir þess og bær lögleiddar" af hálfu Hafnardeildar. En á
fundinum 22. Sept. var „yfirvegað það, sem eftir var af
laga-frumvarpinu frá 12. grein til endalyktar, og viðtekið". — 21. !..
„skólabygginguna", fyrir lærða-skólann i Reykjavik. — 21.—
22. 1., „hvar á Alþingi að fá sér hæli?" Því var ætlað að vera í
skólahúsinu, og þar var það einnig haldið alla tíð, unz
alþingis-húsið var reist nær 40 árum síðar, er Alþingi hafði fengið
fjár-veitingarvald. — 23. 1., „svo alvara komi úr gamni" o. s. frv.;
hann á við gamanvísur sínar, „Skrælingjagrát", sjá I. b., bls.
176—77. — Alþingishaldinu varð að fresta til næsta árs á
eftir, 1845.

Bls. 156—157. — TIL J. F. SCHOUW (?). 9. Nóv. 1843 (?).
— Frumr. er uppkast, ehr., í nr. 13 í abr. í hrs. Bmf., annars
vegar á hálfri kvartörk, er virðist vera sams konar og næsta
bréf hér á undan og næst hér á eftir eru skrifuð á; því virðist
uppkastið vera frá haustinu 1843, en nokkrar likur til, að það
sé fremur frá Nóvember en Október. Þó ber þess að geta, að í
bréfunum hér á eftir frá byrjun Marz-mánaðar er einnig sami
pappír, en meiri likur eru til, að uppkastið sé frá haustinu
1843 en útmánuðunum 1844. Ofan-af blaðinu hafa verið rifnir

24*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0395.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free