Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 388 —
6 cm.; á þeim hluta þess hefir verið upphaf og endir bréfsins,
en allt bendir til, að mjög lítið vanti. Verður nú ekki séð nafn
né titill bess manns, sem þetta bréf hefir verið stílað til, en af
ummælum Jónasar í bréfinu sjálfu getur varla verið um annan
mann að ræða en Joakim Fredrich Schouw, prófessor í
grasa-fræði við Hafnarháskóla (frá 1821) og forstöðumann
grasa-fræðisgarðsins (frá 1841); hann var ágætur og þjóðfrægur
vís-indamaður og jafnframt stjórnmálamaður (f. 1789; d. 1852).
Schouw var spurður ráða af Hafnardeild Bmf., er hafin skyldi
útgáfa uppdráttar Islands (sbr. minningarr. 1867, bls. 40), og
á aðalfundi þeirrar deildar 1843 (18. Febr.) var hann kjörinn
heiðursfélagi Bmf. Jón Sigurðsson gaf Schouw þann vitnisburð,
að hann væri „einhver hinn ráðvandasti maður, sem er til, og
manna bezt að sér" (sjá bréf J. Sig., 1. safn, bls. 68).
Bls. 157—159. — TIL JÓNS SIGURÐSSONAR. í). \óv.
1843. — Ehr. í nr. 13 í abr. í hrs. Bmf. í Lbs. Það er skrifað á
smáörk, sem raunar er hálf, samanbrotin kvartörk, sams konar
og næstu tvö bréf hér á undan eru skrifuð á. Á 4. bls. er
smá-grein sú, sem hér er sett á eftir nafni Jónasar, en að öðru leyt.i
er 4. bls. auð. — Bls. 157, 5. 1. a. n., „bréfið"; mun glatað, svo
sem öll önnur bréf Jóns til Jónasar; hefir vafalaust beim
bréfum og sennilega ýmsum öðrum bréfum til Jónasar verið brennt
að honum fráföllnum; mun lítið vafamál, hver gjört hafi. —
„sendingum", sbr. bréf til J. Sig. 5. Okt. s. á. — 1. 1. a. n.,
„Di-rektioninni", Skoledirektionen, sem hafði skólamálið með
hönd-um. — Bls. 158, 2. 1., „låta lótorfu", eins og stundum mun hafa
verið gert við staða eða níðlata jálka til að örva þá; hún mun
bá hafa verið sett undir stertinn; en ekki munu þess háttar
ör-þrifaráð hafa bótt allsendis viðfelldin. — 3.—4. 1., „íundinum
ykkar", „almennur fundur íslendinga í Kaupmannahöfn",
lík-lega sá, sem haldinn var kvöldið áður og var hinn briðji af
mörgum, er haldnir voru; hinn síðasti var 6. Jan. 1846. Jón
gekkst upphaflega fyrir beim- Um þá fundi sjá nú rit drs. Páls
E. Ólasonar um J. Sig., I., bls. 439—43, og fundabókina, sem er
prentuð, ásamt aths., í Andvara, 45. árg. (1920), bls. 1—58.
.Tónas tók mikinn þátt í beim næsta vetur (1844—45), sbr. V. b.,
bls. CLIV—V, CLXV—VII og CLXXVI—VII. — 8. 1., „Lögin
fóru heim", b- e. lagafrumvarpið, sem samþykkt var af
Hafnardeild Bmf. 14. og 22. Sept., sbr. bréf til J. Sig. 5. Okt. 1843, m.
aths. — Reykjavikurdeild gerði breytingar á frv. og var bað
tekið fyrir aftur á fundi Hafnardeildar 26. Febr. 1845. Var
laganefndinni falið að skrifast á við laganefndina í Rvik um
þær breytingartillögur. Enn var lagamálið tekið fyrir 20. Apr.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>