- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
419

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 419 —

sömu gerð og hinn fyrri, og mun þó ekki hafa lokið við hann
fyr en sumarið 1822. — 12. 1., „1825 — þá nýkominn" o. s.
frv. Hann kom 1820 aftur heim til Rómaborgar norðan frá
Danmörku. Ef til vill er ártalið „1825" að eins prentvilla fyrir
1820. — Bls. 264, 3. 1., „A. MDCCCXXVII", þ. e. Anno og
ár-talið, 1827; þá hefir áletrunin loks verið sett á. — íslenzk
stúlka, sem var þá i Rómaborg, sá skírnarfontinn hjá
Thorvaldsen og segir hún i bréfi 21. Jan. 1827, sjálfsagt eftir honum
sjálfum, að skirnarfonturinn muni verða sendur til
Reykja-vikur-dómkirkju næsta sumar.*) — 11. 1., „1833" o. s. frv.
Fonturinn kom þó ekki til Reykjavíkur fyr en vorið 1839, sbr.
I. b., bls. 66—69, m. aths., þegar B. Th. var kominn til Hafnar
aftur og gekk í það sjálfur, að koma honum heim. Var
fonturinn þá settur í Reykjavíkur-dómkirkju, sem þá var, og er hann
þar, svo sem kunnugt er, enn, i þeirri kirkju, sem gerð var 1847
upp úr eldri kirkjunni. — Bls. 266, 5. 1., „Thiele", höfundur
ævisögu B. Th., þ. e. Just Mathias Thiele; hann var
rithöfund-ur og þjóðsagnasafnari, bókavörður við kgl. bókasafnið i Höfn
og ritari við listaháskólann þar, og e. fr. forstöðumaður
eir-stungumyndasafnsins; f. 1795, d. 1874. Thiele var starfsamur
og nýtur maður. Mjög handgenginn B. Th. Áður en ævisaga
B. Th. kom út, hafði hann gefið út „Bertel Thorvaldsen og
hans Værker", I—IV (1831—50); á Jónas við ummæli Thiele
í því riti. — Sbr. e. fr. „Alberts Thorvaldsens æfisögu", Kh.
1841, bls. 14—15 einkum.

Bls. 266—269. — ÁVARP TIL STÉTTAÞINGSINS í
VÉ-BJÖRGUM. — Frumr. í K. G. 31 a, skrifað, af Jónasi, á 1V2
kvartörk, og sennilega samið af honum. Hér er eflaust um að
ræða stéttaþingið 1838, sbr. t. a. m. Danmarks Riges Historie,
VI., 232 o. s. frv. Það hófst í Mai og var fram i Ágúst; er
ávarp-ið frá þeim tíma (sbr. bls. 268, efst), og mun hafa verið í
ráði, að landar í Höfn sendu það, en ekki verður séð að svo
stöddu, að neitt hafi orðið úr bvi. — Bls. 268, 2. 1., „Petitioner
fra Island" o. s. frv. Um þær bænarskrár má nú vísa til rits
drs. Páls E. Ólasonar um Jón Sigurðsson, II. b., bls. 71—80
(o. s. frv.). Sem kunnugt er, varð árangurinn af þessum
^iála-leitunum fyrst um sinn sá, að konungur (Friðrik 6.) gaf út
22. Ág. þetta ár úrskurð um stofnun sérstakrar
ráðgjafarsam-komu fyrir Island, þ. e. embættismannafundanna (1839 og
1841), og síðar (Kristján 8.) úrskurði um endurreisn alþingis
20. Mai 1840 og 8. Marz 1843. — 21.—22. 1., „Professor Da-

*) Sbr. Sunnanp., 3. Arpr., bls. 139.

24*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0427.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free