- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
3

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

NÁTTÚRUVlSINDIN.

Orðið „náttúra" hefir þrjár þýðingar; ýmist
þýðir það:

1. eðli skapaðra hluta; til að mynda: Það er
náttúra sólarinnar að lýsa og verma; ísinn er
kaldrar náttúru; o. s. frv.; eður:

2. heimsöf lin, þau er ráða mynd og eðli hlutanna;
t. a. m.: Fuglinn er svo gjörður af náttúrunni,
að hann hefir vængi að fljúga með; eður það
þýðir:

3. hina sýnilegu veröldu, það er að skilja allt
hið líkamlega, með öflum sínum og eðli. Þetta
táknar orðið „náttúra", þegar vér segjum: í>að
er inndæl skemmtan að skoða dásemdir
nátt-úrunnar; veglegra dýr en manninn þekkjum
vér ekki í allri náttúrunni; o. s. frv.

Náttúruvísindin eru sú grein mannlegrar vizku,
er skýrir frá öllum líkamlegum hlutum og
rann-sakar öfl þeirra og eðli. Þessum vísindum skiptum
vér í tvo flokka, kraftafræði og náttúrufræði.

A. Kraftafræðin skýrir frá þeim lögum
nátt-úrunnar, er allir hlutir verða að hlýða, t. a. m.
þyngdinni, hita og kulda, hræringarlögum
hlutanna, sömuleiðis frumefnum náttúrunnar og eðli
þeirra (efnafræði).

B. Náttúrufræðin lýsir þeim hlutum náttúr-

1*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0011.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free