- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
8

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

vorir kenndu það umbrotum hins bundna jötuns,
sem fyrir illsku sakir var útskúfaður úr félagi
guð-anna, og fjötraður til heimsins enda.

Það var ekki heldur von, að forfeðrum vorum
yrði greiðfær rannsóknin, þar sem grísku
speking-arnir urðu að nema staðar, og låta sér nægja með
skáldlegar getgátur, sem að vísu bera með sér, að
þær eru upprunnar í hinum forna aðseturstað
heimsins vísinda. Og af því ég býst við, mörgum
muni þykja gaman að kynna sér hugmyndir þeirra
um svo mikilsvert efni, skal ég hér stuttlega segja
höfuðefnið úr Platóns kenningu um uppruna
heimsins, og bera mig að sjá um, að meiningin verði
óbrjáluð.

Frumefnið er, segir þessi heimspekingur, eilíft
eins og guð. I öndverðu lá það í óttalegum
umbrotum, og geymdi í sér undirrót alls hins illa.
Partarnir leituðust við að sameinast, en gagnstæð
og skaðvæn öfl hrundu þeim jafnan í sundur.
Frum-efnið gat íklæðzt alls konar myndum, en engri þeirra
gat það haldið. Skelfing og misklíð sveimuðu án
afláts yfir þess bylgjum.

Guð, sá endalausi og góði, hafði frá eilífð
ákvarðað, að skapa heiminn eftir þeirri mynd, sem
sífellt stóð fyrir hans augum; sú mynd var
óum-breytanleg, ósköpuð og fullkomin. Hugsjón guðs.
líktist hugsjón þess smiðs, sem reisir úr steinum
fagurt hús. Þessi veröld var guðs hugarveröld.
Sýnilegi heimurinn er hennar eftirmynd, og af því
sú æðsta vera hugsar ekkert annað, en það sem
er í raun og veru, þá’ má svo að orði kveða, að
guð skapaði heiminn áður en hann gjörði hann
sýnilegan.

Þegar tími hins mikla verks var kominn, bauð

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0016.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free