Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 10 —
jafnir að fullkomnun, vildi guð þeir skyldu vera
líkir. Þess vegna skóp hann tímann, eilífðarinnar
hverfulu eftirmynd, sem án afláts byrjar hring
daganna og náttanna, mánaðanna og áranna, og
sýnist því að vera án upphafs og enda, og er
mæl-ir tilveru hins sýnilega heims, eins og eilífðin er
mælir tilveru guðs hugarveraldar; og aldrei hefði
hann skilið eftir rök sinnar tilveru, ef sýnileg merki
væru ekki sett til að aðgreina hans hverfandi kafla,
og rétt eins og skrifa þá í röð, ef svo mætti að
orði komast.
í þessum tilgangi skapaði guð sólina og
himin-tunglin, og sveiflaði þeim út í himingeiminn, sem
áður var tómur og auður.
Þá talaði guð til andanna, sem hann hafði
boðið að stjórna gangi himintunglanna: „Guðir!"
sagði hann, „sem eigið mér að þakka yðar tilveru,
hlýðið mínum boðum. Þið eigið öngvan rétt til
ódauð-ieika, en ég vil gefa yður hann, því minn vilji er
máttkari en sambönd hinna ólíku parta, sem þér
eruð gjörðir úr. Ennþá er eftir að fylla hafið og
jörðina og loftið af innbúum, svo heimurinn sé
al-gjör. Ef ég skapaði þessa innbúa sjálfur, og
frels-aði þá frá dauðans valdi, yrðu þeir guðunum
sam-jafnir. Því býð ég yður að búa þá til, og gef
yð-ur þar til vald og vizku. Sameinið dauðlegum
líkömum þau sáðkorn ódauðleikans, sem þér fáið
úr mínum höndum. Skapið einkum verur, sem
drottni yfir öðrum dýrum, og séu yður
undirgefn-ar. Þær skulu myndast að yðar boði, og þróast af
yðar velgjörðum; svo skulu þær einnig
samein-ast yður eftir dauðann, og verða hluttakandi í
yðar sælu".
Þá tók guð leifar af heimsins sál, og hellti
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>