Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 11 —
þeim í bikarinn, sem hún áður var mynduð í. Úr
þessu efni tilbjó hann sálir, og við sálir mannanna
bætti hann þar að auki nokkru af guðdómsins veru,
og gaf þeim órjúfanleg forlög um aldur og ævi.
Þá var ákvarðað, að dauðlegar verur skyldi
fæðast, sem bæru skilning á guði og hans vilja.
Maðurinn skyldi vera konunni æðri, og réttlætið
skyldi vera þar í innifalið að drottna yfir girndum
holdsins, og ranglætið í því að bugast fyrir þeim.
Réttlátir menn skyldu komast í stjarnanna
heim-kynni, og njóta þar eilífrar sælu, en hinir verða
að konum og fæðast svo í annað sinn; og ef þeir
héldu áfram í ranglætinu, skyldu þeir enn fremur
verða íklæddir ýmsra dýra myndum, og öðlast ekki
heiður síns upphaflega eðlis, áður þeir gjörðu sig
hæfa til að hlýða skynseminnar röddu.
Guð hefir ekki getað skapað, og hefir ekki
skapað, utan þá beztu veröld af öllum, sem
skap-aðar urðu, en verkefni hans var óhæfilegt til reglu,
og illt viðureignar, og gjörði hans vilja þunga og
sífellda mótspyrnu. Af þeirri mótspyrnu má ennþá
sjá nokkrar menjar, og þar af koma stormar og
landskjálftar og allar þær eyðileggingar, sem
granda vorum jarðarhnetti. Andarnir, sem
mynd-uðu oss, urðu líka að nota það efni, sem þeim var
fengið í hendur; þar af koma veikindi líkamans
og sálarinnar. Allt, sem er gott í heiminum öllum
og manninum útaf fyrir sig, er upprunnið hjá
æðstum guði, en hitt, sem er ábótavant, leiðir af
brestum frumefnisins.
Svona er nú tilgáta heimspekingsins gríska, og
gåt ég ekki skýrt frá henni í færri orðum, svo
mein-ingin væri óbrjáluð. Mér sýndist hún samt of
merki-!eg, til að sleppa henni öldungis, því hún er rétt-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>