Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 15 —
ist menn svo í bobba, sem ekki verði greitt úr með
nokkru móti, og það sé ekki trútt um, að hin
óbif-anlega nauðsyn og eilifu lög, sem náttúrufræðin
sýni að heimurinn hafi hlotið að myndast eftir, og
ævinlega viðhaldist, geti leitt til guðsafneitunar.
En þessu er öngvan veginn svo varið. Ritningin
seg-ir, að í upphafi skapaði guð himin og jörð, og því
mun öngvum koma í hug að neita; en hún talar
ekkert um, hve nær upphaf tímans hafi verið, eður
hvað við hafi borið frá upphafi, og til þess
tíma-bils, þá jörðin var eyði og tóm, og guð lét ljósið skina í
myrkrunum, og greindi vötnin að frá þurlendinu,
svo hún yrði byggileg að nýju. Öllum lærðum
guð-fræðingum ber nú líka saman um, að frásagan um
sköpunarverkið sé í rauninni hugmynd einhvers
austurlanda-heimspekings um uppruna
jarðarinn-ar, og er hún að vísu svo háleit, að enginn myndi
vilja missa hana úr biblíunni. Hvað öflum
náttúr-unnar og eilífa lögmáli viðvikur, þá sjá menn
einn-ig við nákvæmari íhugun, að þau reyndar eru hin
endanlega mynd, er oss auðnast að sjá vilja guðs og
hina eilífu skynsemi í; en hjá sjálfum guði er
engin umbreyting né umbreytingarskuggi, svo
guð-rækileg skoðun hlutanna hlýtur, ekki síður en
heim-spekilegar rannsóknir, að leiða menn á þá
sann-færingu, að lögmál náttúrunnar sé eilíft og
óum-breytanlegt. Því fer svo fjarri, að almætti guðs og
frjálsu vizku sé neitað fyrir það, að einmitt af því
hinn frjálsi guð er fullkominn og ótakmarkaður,
hljóta hans gjörðir fyrir vorum augum að líta út
sem eilíf og óbifanleg lög, er allir hlutir verði að
hlýða. Tökum til dæmis þyngdina. í fyrstunni
kem-ur hún oss fyrir sjónir eins og almennt lögmál
fyrir hlutina hér á jörðu; við nákvæmari ígrundun
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>