- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
14

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 14 —

og hafa þeir flestir undarlegt sköpulag og ærið
frá-brugðið þeim verum, sem nú á dögum finnast á
jörðunni og í sjónum.

Allar þessar fornu menjar hafa nú
jarðfræð-ingarnir notað sér, og getið til með miklum
skarp-leik, hvernig hafi orðið að vera ástatt á vorum
hnetti, þegar þess konar dýr gátu lifað þar, og
því-lík tré og aldini gróið. Ég skal nú leitast við a5
gefa lesendum Fjölnis dálítið sýnishorn af
jarð-fræðinni, eins og hún lítur út sem stendur, og
verð-ur það samt styttra en skyldi, einkum vegna þessr
að það er margt hér að lútandi, sem ekki verður
frá skýrt, nema lesendunum væri kunnug
heim-speki og helztu greinir úr efnafræðinni*) (Chemie),.
sem það væri ósanngjarnt að ætlast til, alþýða hefði
numið. Margt er það líka, sem enn er óljóst í
ævi-sögu jarðarinnar, því þessi vísindagrein er ennþá
mjög í bernsku, og fer þessi árin svo óðum fram, að
varla mun líða langt um, áður en hún verði búin
að fá annað fegra útlit.

Áður en lengra er farið, verð ég samt að svara
einni mótsögn, sem ég er hræddur um, mörgum
skynsömum manni muni detta í hug að gjöra mér;
því ég býst við menn segi, það sé ekki varlegt, að
tala um, hvað jörðin sé furðulega gömul, og þess
háttar rannsóknir geti orðið hættulegar fyrir trúnaT
því af biblíunni geti hver maður séð, að jörðin sé
ekki fullra 6 þúsund ára, og þar á ofan sé hún öll
sköpuð á 6 dögum; en rannsóknir
jarðfræðing-anna og nýstárlegu uppgötvanir leiði til ályktanar
sem séu gagnstæðar ritningarinnar orðum, og kom-

*) í þessari vísindagrein eru rannsökutS frumefni
náttúr-unnar og sameining þeirra.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0022.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free