- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
17

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 17 —

bikið, og hefir henni verið likt við ígulker. Hefði
nú jörðin einhvern tíma verið bráðin og rennandi,
hlaut hún að öðlast mynd hnattarins, eins og
drop-inn í loftinu; því eftir lögmáli þyngdarinnar urðu
allir partarnir að dragast að miðpunktinum, og
raða sér svo utan um hann, jafnt á alla vegu. En
nú er það ekki síður kunnugt, að jörðin veltist með
ærnum hraða frá vestri til austurs, og að það er
sú hræring, sem ræður uraskiptum dags og nætur.
Hér af má ráða, að mest muni vera kastið á
mið-biki jarðarinnar, og minnka eftir tiltölu suður og
norður frá miðjarðarlínunni á alla vegu, þangað til
það verður að þverra með öllu í hjólgaddsendum
jarðarinnar. En það er eðli snúningsins, að sérhver
hluti hjóls eða hnattar, sem snúið er, leitast við að
fjúka beint út í bláinn eftir sinni snertilínu,*) og
það því fremur, sem hann er fjarlægari
hjólgadd-inum, og að vísu fyki hann burt, ef gagnstæð öfl,
sterkari en kastaflið, héldu honum ekki aftur.
Hefði nú jörðin, eins og áður er sagt, einhvern tíma
verið bráðin, og þar á ofan snúizt, gåt ekki hjá því
farið, að hnattarlögunin haggaðist, og jörðin tæki
að þrútna um miðjuna, af því partarnir leituðu á
burt, og hófust þar mest, sem kastið var ákafast.
Með aðstoð reikningslistarinnar voru menn búnir
að finna fyrir löngu, hvaða lögun jörðin hefði
orð-ið að hljóta, eftir þeim ástæðum, sem nú eru
nefnd-ar. Og hvað segir nú reynslan til alls þessa? Varla

*) Snertilína (linea tangens á lat., Tangent
á d.) heitir hver sú lína, sem stendur þverbeint á enda einhvers
geisla í hring eða hnetti, og snertir hún a?5 eins einn punkt í
hringnum. ÞaS afl, sem hrindir sérhverjum parti burt eftir
þess-ari línu, þegar snúi?5 er, heitir kastafl (Centrifugal-Kraft,
Tan-gential-Kraft).

2

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0025.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free