Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 18 —
hefir skynsemin 1 annað sinn öðlast fegri
vitnis-burð, hvað hennar dómar séu óbrigðulir, þegar
hugmyndirnar eru réttilega samtengdar og studdar
á almennum sannindum; því það var ekki fyr en
seinna, að jörðin var mæld svo nákvæmlega, að
lögun hennar fannst með öllu, og þá reyndist það,
sem áður er sagt, að hún var öldungis eins og menn
áður af skynseminni höfðu til getið. Þannig varð
mannsins getgáta að áþreifanlegum sannindum,
staðfest af reynslunni með fegursta móti. Ég hefi
sagt svo greinilega frá þessum atburði, bæði af því„
hvað ljóslega hann vottar, hversu skynsemin er
áreiðanleg, og einkum vegna hins, að hann kemur
mér i góðar þarfir við útskýringu þess, sem nú skal
tilgreint; en það er skarpvitur getgáta um
upp-runa og myndun heimsins, sem spekingurinn Kant
fyrstur kom upp með, en seinna var snillilega
fyr-ir komið af frönskum manni hálærðum, cle la Place,
(du la Plas), i riti hans um heimsins byggingu.
Fyrst af öllu urðu þeir, eins og aðrir, að hugsa
sér frumefni heimsins skapað og tilverandi,
fyll-andi upp hinn auða geim — hann kölluðu forfeður
vorir ginnungagap; hér við bættu þeir
snúningn-um, sem er elztur allra hræringa og eiliflega rikir
á himni og jörðu. Á þessu tvennu reistu þeir
hug-mynd sína um myndun heimsins og uppruna. Þeir
sögðu svo: Hugleiðum fyrst og fremst myndun vors
sólkerfis. Hvorki sól né tungl né reikandi stjörnur
voru til, en frumefnið var eintóm gufa, ofurselt
kröftum sinum og sveimaði um himingeiminn.
Eftir lögmáli þyngdarinnar hlaut það að öðlast mynd
hnattarins, og þegar hér við bætist snúningurinn,
gåt ekki hjá því farið, að nokkur hluti gufunnar
safnaðist í garð um miðbik þessa þokuhnattar. Það
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>